12.03.1925
Neðri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

Jóh Baldvinsson:

Hæstv. atvrh. (MG) sagði, að þetta varðaði ekki bændur, en mjer finst skýrslurnar varða alla. Ýmsir bændur hafa áhuga á útvegsmálum og eiga jafnvel fje sitt í útvegi. Og til eru líka útvegsbændur. Jeg álít, að skýrslurnar eigi að birta undir eins í dagblöðunum hjer í Reykjavík. Um Ægi ber þess að gæta, að hann kemur út aðeins einu sinni í mánuði, og ef skýrslurnar væru birtar þar, er hætt við, að þær kæmu nokkuð seint. Jeg hefi ekki haldið því fram, að skýrslur sendimannsins ætti að birta orði til orðs. Þetta atriði, skýrslubirtingin, er að sjálfsögðu þess eðlis, að landsmenn eiga heimtingu á að fá að vita um það, en ekki einungis fáeinir menn.

Hæstv. atvrh. (MG) sagðist mundu slá upp þessu embætti, og svo yrði það veitt hæfasta manninum, sem völ væri á. En honum þýðir ekki þessi skollaleikur, hæstv. atvrh., því að vitanlegt er, að einn ákveðinn maður fær þetta starf, og þó að jeg nefndi þetta, þarf hæstv. atvrh. ekki að taka það sem nein meðmæli. Jeg gerði hvorki áð lofa manninn nje lasta.

En hvað kostar nú þetta alt saman! Jeg hefi ekki tekið eftir, að hœstv. atvrh. hafi getið um það. Það mœtti þó ætla, að það væri talsvert þýðingarmikið atriði, þó að jeg leggi ekki áherslu á það við þessa umr., ef hæstv. atvrh. er ekki tilbúinn að svara.