12.03.1925
Neðri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (708)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Atvinnumálaráðherra (MG):
Hv. þm. Barð. (HK) óskar samnings til 5–6 ára, en vill ekki að lög sjeu sett um þetta. En það er verra fyrir landssjóð, því að ef samningurinn er gerður, er hann bundinn, en á hinn bóginn getur Alþingi breytt lögum þegar það vill.
Háttv. þm. Barð. (HK) bjóst við, að launahlutinn yrði tekinn upp í fjárlögin nú. Mig minnir, að teknar væru upp 10 þúsund krónur eins og áður. (HK: Er það sá hluti?). Jeg vil benda hv. þm. á það, að ef lög eru sett á þingi, er hafa aukin útgjöld í för með sjer, má greiða þau útgjöld úr ríkissjóði af tekjum næsta árs, sbr. 26. gr. fjárlagafrv. Það er rjett, að engin yfirlýsing hefir komið frá Landsbankanum út af launagreiðslunni, heldur aðeins frá Íslandsbanka, og er það vegna þess, að gengið var út frá því, að hann greiddi sinn hluta, þótt embættið verði fest með lögum, eins og þegar maður var hafður í því á hlaupum.
Hv. þm. Barð. (HK) talaði um, að sjer fyndist eðlilegast, að málið færi til fjhn., en þingsköp mæla svo fyrir, að hvert mál fari til sömu nefndar í báðum deildum Nú var þetta í sjútvn. í Ed. Þá á það eins að fara til sjútvn. hjer.
Þá kem jeg að hv. 2. þm. Reykv. (JBald). Hann hneykslaðist á því, að jeg hafi sagt, að þetta varðaði ekki bændur yfirleitt. (JBald: Varðaði ekki bændur, en ekki bændur yfirleitt). Nú, jeg játa, að þetta „yfirleitt“ hefði átt að vera. Það var þá gott fyrir hv. 2. þm. Reykv., að nú gat hann fengið snaga til að hengja hattinn sinn á. Jeg efast um, að hann vilji lýsa því yfir, að hann taki skýrslurnar í það dagblað, sem vænta má, að honum standi næst, enda efast jeg um, að það hafi rúm til þess, og dreg jeg það af því, að jeg veit ekki betur en að það blað flytji. stundum útlendar frjettir viku eftir að þær koma. Ef svo væri einnig með aflaskýrslurnar, verður það litlu betra en þótt Ægir flytti þær.
Mjer er sama, hvað hv. 2. þm. Reykv. segir um að það sje einn ákveðinn maður, sem fái embættið. Jeg hefi tekið það fram, að um það er ekkert ákveðið enn. Og þótt hv. 2. þm. Reykv. hafi gefið meðmæli sín í ógáti, þá skulu þau verða tekin til greina eins fyrir því.
Enn er kostnaðurinn ekki ákveðinn. En jeg get upplýst, að þessi maður hefir haft £ 100 á mánuði. Frekari upplýsingar get jeg ekki gefið um það atriði.