16.04.1925
Neðri deild: 57. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (711)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

Ásgeir Ásgeirsson:

Eins og hv. frsm. nefndarinnar (JakM) tók fram, er lítill ágreiningur um þörf þessa embættis. Þess er þörf bæði til þess að fylgjast með verðbreytingum á Spáni og kröfum um vörugæði og kvörtunum, sem fram kunna að koma, og eins til þess að stuðla að aukinni fisksölu bæði á gömlum stöðum og nýjum.

Álits stjórna Landsbankans, Íslandsbanka og Fiskifjelagsins hefir sjávarútvegsnefnd leitað um þetta mál, og hafa svör borist frá öllum. Vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp kafla úr svörum þessum, þar eð þau hafa ekki verið birt í nefndarálitinu. Stjórn Landsbankans segir svo í svari sínu.

„Landsbankastjórnin er þeirrar skoðunar, að það sje (hin mesta nauðsyn fyrir landið að hafa verslunarfróðan erindreka á Spáni og Ítalíu, þeim löndum, sem kaupa meginhluta af fiskafurðum vorum. Að voru áliti ætti hlutverk slíks verslunarerindreka eigi aðeins að vera það að útvega ábyggilegar markaðsfrjettir, heldur einnig að vinna að aukinni sölu fiskjarins á gömlum neyslustöðum og reyna að koma honum inn á nýjum stöðum. Frá honum ættu að koma leiðbeiningar um þær breytingar, sem kynnu að vera æskilegar á verkun fiskjarins, sendingarmáta o. fl. þ. h. Þá mætti ennfremur búast við, að hann gæti greitt fyrir endurbótum á sjálfri fisksölunni, og væri það eigi þýðingarminst. Reynsla undanfarinna ára sýnir, að á því sviði er mikil umbótaþörf “.

Vil jeg því næst leyfa mjer að lesa upp ummæli Fiskifjelagsstjórnarinnar, sem ganga í svipaða átt:

„Vjer álítum, að það geti haft mjög mikið að þýða fyrir fiskmarkað vorn í Miðjarðarhafslöndunum, að þar væri búsettur maður, sem stöðugt gæfi upplýsingar um þær breytingar, sem verða þar með verð og innflutning á fiski þangað, og sömuleiðis kynni sjer þær kvartanir, sem kaupendur þar öðruhvoru eru að gera yfir förmum, sem hjeðan koma. Þetta er því nauðsynlegra, þar sem fiskimatsmenn vorir eiga sjaldan tækifæri til að fara þangað og kynnast þeim framförum, sem aðrar þjóðir, t. d. Norðmenn, eru að gera viðvíkjandi framleiðslu sinni.

Starf þessa manns er að miklu leyti gagnslaust, ef ekki aðrir en bankarnir og einstakir menn eiga kost á að kynnast skýrslum fiskifulltrúans, og ætti því að gera þá kröfu jafnframt, að skýrslur hans væru birtar opinberlega framleiðendum til leiðbeiningar.

Ennfremur teljum vjer sjálfsagt, að fiskifulltrúanum beri að svara fyrirspurnum frá Fiskifjelagi Íslands um þau atriði, er snerta fiskmarkaðinn“.

Af því, sem jeg nú hefi lesið, sjest, að ekki er neinn ágreiningur um nauðsyn þess að hafa fulltrúa þar syðra. Um kostnaðarhliðina er öðru máli að gegna. Landsbankinn skorast undan að taka þátt í að launa fulltrúann, og vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa ummæli bankastjórnarinnar:

„Landsbankinn hefir að vísu tekið þátt í kostnaði við, að erindreki hefir verið sendur til Spánar tvö undanfarin ár, og dvaldi hann þar þó aðeins 3–4 mánuði hvort árið. Þessi þátttaka bankans bygðist á því, að þessi ár var markaðurinn sjerstaklega varhugaverður, og þar sem eigi virtist með öðru móti hægt að koma málinu í framkvæmd, tók bankinn þátt í kostnaði við þessa sendiför sem bráðabirgðaúrræði. Hitt hefir oss aldrei komið til hugar, að til frambúðar yrði málinu ráðið til lykta á þennan hátt, að Landsbankinn tæki þátt í að greiða kostnað við erindrekastarfsemina. Hjer er að ræða um starf, sem er í þágu þjóðarinnar í heild, þótt það sje sjerstaklega í þágu annars aðalatvinnuvegs landsmanna. Oss virðist því augljóst, að kostnaðinn við þetta starf beri að greiða úr ríkissjóði. Þó virðist oss, að komið gæti til mála að leggja sjerstakt viðbótarútflutningsgjald á sjávarafurðir til þess að standast kostnað við starfið. Þessi leið er þó með öllu ný og gæti átt við fleiri opinberar stöður, og mætti þá svo fara, að erfitt yrði og vandasamt að skifta þeim kostnaði á rjetta hlutaðeigendur.

Vjer fáum ekki sjeð, að nokkur ástæða sje til, að Landsbankinn taki þátt í kostnaði við þessa stöðu frekar en ýmsar aðrar opinberar stöður, sem eru bankanum óviðkomandi, og getum því eigi fallist á ákvæði greinarinnar í þessu efni.“

Þessi ummæli Landsbankastjórnarinnar hefi jeg ekki, fremur en aðrir nefndarmenn, fallist á. Enda þótt segja megi, að fje Landsbankans og ríkissjóðs sje úr sama vasa, virðist þó heppilegra til samræmis við þátttöku Íslandsbanka í kostnaðinum, að Landsbankinn greiði og sinn hluta. Stjórn Íslandsbanka færir góð rök fyrir þessu, þar sem hún segir svo:

„Upplýsingar þessar eru sjerstaklega nauðsynlegar fyrir alla fiskframleiðendur og geta haft mikil áhrif á fiskverðið. Þær eru framleiðendum trygging fyrir því, að fiskkaupendurnir geri hæfilegt boð í fiskinn.

Þátttaka landsins í kostnaðinum byggist á þessari hlið málsins, hagsmunum þegnanna, en þátttaka bankans eða bankanna byggist auk þeirra hagsmuna, sem þeir kunna að eiga að gæta hjá framleiðendum, einkum á því, að það er oft og tíðum bráðnauðsynlegt vegna fisksölunnar að hafa á Spáni og Ítalíu mann, sem bankarnir, er svo ber undir, geta falið að sjá blátt áfram um sölu á fiski, svo sem þegar erlendur kaupandi getur ekki eða vill ekki uppfylla gerða samninga við íslenska fiskikaupmenn, sem hafa fengið peningana að meira eða minna leyti að láni hjá bönkunum hjer“.

Jeg verð fyrir mitt leyti að fylgja ákvæðum frv. í þessu efni. Efni brtt. minnar er um annað. Þar sem jeg felst á, að kostnaðurinn skiftist í þrjá staði, tel jeg og heppilegt, að fulltrúinn sje skipaður eftir tillögum þeirra þriggja aðilja, sem kostnaðinn greiða, og Fiskifjelags Íslands, sem þessum málum er kunnugast. Þá hefi jeg og lagt til, að fulltrúinn verði aðeins skipaður til 5 ára fyrst um sinn. Vil jeg því til stuðnings leyfa mjer að benda á ummæli Fiskifjelagsins:

„Vjer álítum, að skipun fiskifulltrúa ætti að vera bundin við eitthvert vist tímabil,. t. d. 4–5 ár.“

Það er vandi annara þjóða, er þær senda nýja fulltrúa, að ákveða, hve langan tíma þeir skuli sitja fyrst um sinn. Úr því að Danir láta sjer sæma að senda sendiherra eða Charge d’affaires til fimm ára, ættum vjer að geta gert það sama um fiskifulltrúa. Auk þess mundi ekkert tjón verða að því, þótt fulltrúinn hefði nokkurt aðhald á þennan hátt. Ef hann leysir starf sitt vel af hendi, svo að stjórnir bankanna og Fiskifjelagsins sjeu ánægðar með, er hann eins fastur í sessi eins og þótt staða hans væri þegar gerð að föstu embætti. Jeg vil því leggja áherslu á, að tíminn sje ekki ákveðinn lengri en þetta.

Þá kem jeg að brtt. um laun fulltrúans og leyfi mjer þá að lesa upp það, sem stjórn Landsbankans segir um það atriði í brjefi sínu. Hún fer um þetta svofeldum orðum:

„í 3. gr. er ákveðið, að laun fulltrúans skuli ákveðin af landsstjórninni að fengnum till. bankanna. Hver sem úrslitin verða um það, á hvern hátt launin greiðast, þá virðist oss alveg sjálfsagt, að launin sjeu ákveðin í lögunum sjálfum.“

Það er rjett hjá Landsbankastjórninni, að óhæfilegt er að setja engin föst launaákvæði í lögin. Það er svo jafnan þegar embætti eru stofnuð, að um leið er ákveðið um launakjörin. Alþingi setur embættið á stofn og ákveður launin, sem venjulega fara eftir sjerþekkingu mannsins og kostnaði við að framfleyta lífinu á hverjum stað, og á þessi regla eins við, hvort sem ríkið launar manninum að öllu leyti sjálft eða ekki. Hinsvegar er því ekki að leyna, að mörgum finst kostnaður við þennan sendimann undanfarið hafa verið nokkuð hár, þar sem honum hafa verið greiddar 20 þús. kr. í 4 mánuði, eða sem svarar 60 þús. kr. yfir árið. Sendiherra Norðmanna á Spáni, sem vegna stöðu sinnar hefir þó meiri skyldur, kostar ekki nema 45–50 þús. kr. á ári. Jeg þykist hafa farið allhátt, er jeg legg til, að árslaunin verði 12000 kr. að viðbættri upphæð, sem Alþingi ákveður árlega, og miða jeg till. mína við kjör „generalkonsúla“ Norðmanna, sem hafa 13 þús. kr. í föst laun. „Generalkonsúll“ þeirra í Genua hefir þar að auki 6000 kr. staðaruppbót, auk nokkurs skrifstofufjár. Það er óviðkunnanlegt, að föst laun einfalds fiskifulltrúa fari fram úr ráðherralaunum. — Annars hafa Norðmenn engan slíkan fulltrúa sem þennan á Spáni, svo hægt sje að miða við laun hans. Aftur á móti hafa þeir þar sendiherra, sem hefir 20 þús. kr. í föst laun og 10 þús. kr. staðaruppbót. Auk þess má geta þess, að Norðmenn greiða sínum mönnum í viðbót 50% af staðaruppbótinni, ef þeir eru kvæntir, og ennfremur 10% af sömu uppbót fyrir hvert barn, sem þeir eiga. Ættum við hjer líka að taka tillit til framfærslukostnaðar.

Jeg skal ekki um það segja, hvort jeg hefi hitt á það rjetta í till. mínum, en væntanlega láta þeir þá til sín heyra, sem betur sjá. — En því verð jeg að halda fram, að það sje engu meiri vandi fyrir þingið að ákveða laun þessa fulltrúa heldur en fyrir hæstv. stjórn. Von bráðar þarf hún að fara að semja um þetta, og því ættu eins nú allar upplýsingar þessu viðvíkjandi að geta legið fyrir þinginu.

Það hefir verið sagt, að öðru máli sje að gegna um þennan sendimann en sendimenn annara ríkja yfirleitt, þar sem verksviðið væri miklu stærra. Þetta er að vissu leyti rjett, en þess má geta, að sumar þjóðir hafa þó einn sendimann fyrir mörg ríki. Auk þess kemur þetta ekki til greina, þar sem gert er ráð fyrir, að ferðakostnaður greiðist sjerstaklega og af sömu aðiljum og launin. Raunar hefi jeg heyrt því haldið fram, að ráðlegast myndi vera að semja við fulltrúann um föst laun, og láta hann svo bera allan kostnaðinn af ferðum sínum. En þessu er jeg mótfallinn. Jeg vil ekki láta það verða eiginhagsmunahvöt fyrir fulltrúann að ferðast sem minst, heldur á hann að ferðast hvenær sem nauðsyn krefur. Því á allur slíkur kostnaður að greiðast af ríkinu og þeim öðrum, sem kaupið greiða.

Að lokum vil jeg geta þess, að í nál. hv. Ed. virðist vera ætlast til þess, að sendimaðurinn verði á sínum tíma gerður að sendiherra, og er í því sambandi vitnað til 7. gr. sambandslaganna. En það er misskilningur hjá hv. nefnd, ef hún heldur, að sú grein gefi nokkra heimild til slíks. Munu og flestir játa, að þessi sendimaður okkar sje ekki skipaður af „diplomatiskum“ ástæðum, heldur vegna atvinnuveganna. Hann er ekki fulltrúi vor á sama hátt og Sveinn Björnsson var það í Kaupmannahöfn, enda myndi það aðeins auka kostnaðinn, en ekki gagnið af embættinu, að fara að gera það „diplomatiskt“