16.04.1925
Neðri deild: 57. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (730)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

0730Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg hygg, að ekki þurfi annað til þess að sannfæra hv. þm. Str. (TrÞ) en að lesa upp 26. gr. fjárlaganna, en þar stendur:

„Ef lög þau verða staðfest, sem afgreidd hafa verið frá Alþingi 1925 og hafa í för með sjer tekjur eða gjöld fyrir ríkissjóð, breytast fjárhæðirnar tekju- og gjaldamegin samkvæmt þeim lögum.“

Það er altaf svo, þegar lög eru samþykt, sem hafa gjöld í för með sjer, að þau eru ekki tekin upp í fjárlögin það ár. Þetta ætti hv. þm. Str. (TrÞ) að vera kunnugt um, en annars eru í fjárlagafrv. fyrir 1926 tekin upp 10 þús. kr. fjárveiting í þessu skyni.