16.04.1925
Neðri deild: 57. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (731)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Tryggvi Þórhallsson:
Mjer er vel kunnugt um þessa grein fjárlaganna. En þegar búið er að samþykkja að veita þetta fje, því þá ekki að taka það upp í fjárlögin nú? Jeg skírskota til hæstv. fjrh. (JÞ), sem er svo ant um að hafa í fjárlögunum alt, sem greiðast á, hvort hann vill ekki að þetta sje tekið upp.