18.04.1925
Neðri deild: 59. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1492 í B-deild Alþingistíðinda. (740)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg hafði hugsað mjer og vil hjer með fara bónarveg að hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), að hann taki aftur brtt. sína, af þeirri ástæðu, að það er gefinn hlutur, að sá maður, sem skipaður verður til þessa starfs, verður skyldaður til þess að hafa ekki önnur störf á hendi, hvorki verslun fyrir eigin hönd nje umboðsverslun eða neitt slíkt. Og ef hv. þm. (SvÓ) tekur aftur sína tillögu, þá skal jeg lofa því, að hún skal verða tekin upp orði til orðs í erindisbrjef eða skipunarbrjef þess manns, er stöðuna fær. En ástæðan til þess, að jeg óska, að till. sje tekin aftur, er sú einungis, að jeg vil, að málið komist áfram sem allra fyrst, með því að margar og sterkar raddir láta til sín heyra um að senda manninn sem fyrst. Jeg skil ekki, að það geti verið neitt aðalatriði fyrir neinn, hvort manninum eru bönnuð þessi störf með lögum eða t. d. í erindisbrjefinu, því að fyrir hann gildir erindisbrjefið og skipunarbrjefið sem lög.
Út af brtt. hv. 1. þm. Árn. (MT) vil jeg geta þess, að hún gengur að einu leyti lengra en till. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), þar sem hann vill, að sá, sem stöðuna fær, megi ekki vera eða hafa verið í þjónustu annars ríkis. Jeg get vísað til orða hv. þm. Dala. (BJ) um þetta. Jeg get ekki sjeð, að það sje nokkurn hlut verra, þó maðurinn hafi einhverntíma gegnt einhverjum störfum fyrir annað ríki, ef hann hefir þau ekki með höndum meðan hann gegnir þessu starfi. Það er vitaskuld, eins og hv. þm. Dala. (BJ) tók fram, að þessi till. er stíluð gegn ákveðnum manni, sem jeg heyri, að búist er við að fái þetta starf. Þessi maður er nú spanskur konsúll, og auðvitað verður það gert að skilyrði, að hann sleppi því embætti, ef hann fær þessa stöðu. En jeg get ekki sjeð, að það sje nokkuð verra, þó að hann hafi áður gegnt þessu konsúlsstarfi fyrir Spán. Það ætti fremur að gefa honum álit þar syðra og frekar ljetta honum starfið en torvelda það. Að öðru leyti er mjer illa við miklar umr. um þetta mál nú. Það hefir þegar verið svo mikið rætt, og einkum verð jeg að telja óviðeigandi að ræða um einstakar greinar frv. við 3. umr. En því vil jeg neita, sem hv. 1. þm. Árn. (MT) sagði, að þetta væri bitlingamál. Það er alls ekki svo, heldur er frv. fram komið eftir beiðni bði sjávarútvegsmanna og Íslandsbanka. Og það líður varla svo dagur, eins og jeg gat um við 2. umr. málsins, að einn bankastjórinn við Íslandsbanka spyrji mig ekki eftir því, hvað málinu líði. Það er því ekki að furða, þótt bankinn vilji leggja nokkuð í sölurnar, þegar svo mikil áhersla er á það lögð, að málið nái fram að ganga. (MT: Hvaða bankastjóri er það?). Það er víst, að það er ekki sá bankastjórinn, sem háttv. þm. (MT) metur minst. Það er hv. 1. landsk. (SE), sem jeg á við.