18.04.1925
Neðri deild: 59. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (745)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Atvinnumálaráðherra (MG):
Háttv. í. þm. S.-M. (SvÓ) vill ekki taka till. sína aftur, og er þá ekkert við því að segja. En þá vil jeg skora á hv. deild að fella hana og læt þess jafnframt getið, að hún skal orði til orðs verða tekin upp í erindisbrjef þess, er skipaður verður, svo að enginn þarf að óttast að greiða atkv. gegn henni.
Jeg hafði misheyrt, hvað háttv. 1. þm. Árn. (MT) sagði. Mjer heyrðist hann tala um bitlingasýki, en hann kvaðst hafa nefnt bitlingapólitík. En það skiftir ekki máli, því að hvorttveggja er jafnrangt, eins og við er að búast úr þeirri átt.