28.02.1925
Efri deild: 19. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1500 í B-deild Alþingistíðinda. (752)
75. mál, dócentsembætti við heimspekideild
Forsætisráðherra (JM):
Frv. þessu samhljóða hefir komið hjer fram á þingi áður og er nú lagt fram öðru sinni eftir áskorun frá heimspekideild háskólans, sem leggur mikla áherslu á, að kensla í íslenskri tungu fari fram við háskólann.
Um nauðsyn þessa, að íslensk tunga sje kend í íslenskum háskóla, þykist jeg ekki þurfa að tala mikið. Jeg býst við, að menn viðurkenni, að það sje sjálfgefið, að menn eigi þar fyrst og fremst að geta notið fræðslu um íslenska tungu. Hygg jeg og, að það sje viðurkent, að svo mikið sem þjóðin á að þakka bókmentum íslenskum að öðru leyti, þá sje það þó íslensk tunga, sem hefir mest hjálpað til að halda við okkar þjóðerni. Það er ekki farið fram á meiri útgjöld en áður voru greidd í þessu skyni, því eins og kunnugt er, var fje veitt alt til síðustu ársloka til þessarar kenslu, og það jafnt og við slíkt embætti, sem farið er fram á að stofna. Því ber ekki að neita, að hjer er jafnframt hugsað um ákveðinn mann í þetta embætti, þann hinn sama, sem hefir haft þessa kenslu á hendi nú um nokkur ár við háskólann.
Það er í mínum augum nokkuð svipað um þetta frv. eins og annað frv. á dagskrá í dag, um styrkveitingu til stúdenta erlendis. Það frv. var fram komið til þess að tryggja það, að stúdentar, sem hafa og munu treysta upp á styrk til náms erlendis, verði ekki sviftir styrknum. Svipað er um þetta frv.
Eins og jeg hefi oft tekið fram áður, var bæði af fjvn., svo mikið sem auðið var, og af tveimur stjórnum búið að gefa mjög ákveðnar vonir um, að þetta yrði frambúðarstaða fyrir manninn, sem kendi, dr. Alexander Jóhannesson. Og það stappar nærri að bregða loforðum, ef á að hrekja þennan mann frá háskólanum. Þar að auki er það ekki minkunarlaust, að enginn sje til að kenna íslenska tungu við háskólann. Jeg býst ekki við, að um það þurfi að deila. Það er mjög leitt, ef hægt sje að segja, að löggjafarþingið, þó það hafi ekki bundið sig með beinum lögum, gangi á bak orða sinna og að nokkru leyti verði til þess, að stjórn ríkisins verði að gera undir það hið sama.
Það mætti kannske eitthvað um þetta segja, ef maðurinn, sem starfið er ætlað fyrst um sinn, væri ekki til þess hæfur. En það er mjög fjarri því. Jeg hygg, að það sje viðurkent nú, að þessi maður sje reglulegur vísindamaður, sá eini eflaust hjer á landi, sem er fyllilega svo fær í ísl. tungu, að hann geti kent hana við háskólann. Mjer er sagt, að til þess þurfi maðurinn meðal annars að hafa lagt stund á gotnesku og ýms önnur skyld mál, sem hann hefir og gert. Þar að auki hefir hann sýnt með margvíslegum ritum sínum, að hjer er um sannan vísindamann að ræða. Þeir, sem á þessu hafa vit, hafa lokið mjög miklu lofsorði á starfsemi hans einmitt í þessari grein, og ritdómar um rit hans hafa allir verið mjög lofsamlegir.
Jeg ætla ekki að tala frekar um þetta mál að sinni; vona, að hv. deild athugi málið með velvild. Tel jeg sjálfsagt, að málinu verði, að umr. lokinni, vísað til háttv. mentmn., sem jeg treysti, að geti gefið því meðmæli. Máske hefði verið hægt að halda kenslunni áfram með því einu að veita fje í fjárlögum, hefði ekki síðasta þing mjög svo ómaklega skorið fjárveitinguna niður. Nú verðum við að segja ákveðið, hvort við viljum hafa íslenskukenslu við háskóla vorn eða ekki.