28.02.1925
Efri deild: 19. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1519 í B-deild Alþingistíðinda. (761)

75. mál, dócentsembætti við heimspekideild

Forsætisráðherra (JM):

Það tekur því varla að mótmæla þessu. Þegar hv. 5. landsk. (JJ) talar um, að jeg niðri mikilhæfum vísindamönnum, svo sem dr. Sigurði Nordal og dr. Páli Eggert Ólasyni, þó að jeg segi, að þeir sjeu ekki sem stendur færir til að kenna ísl. tungu við háskólann, þá er þetta alls engin niðrun fyrir þá. (JJ: Sigurður Nordal hefir lagt fyrir sig íslensku vísindalega). Það hafá fleiri gert; jeg hygg til dæmis, að Einar Jónsson sje vel að sjer í henni, en jeg ætla, að dr. Sigurður Nordal hafi snemma snúið sjer gersamlega að bókmentunum, og að hann myndi svara því sjálfur til aðspurður, að hann teldi sig ekki færan til að kenna íslenska tungu vísindalega við háskólann. (JJ: Það vottorð vantar). Það vottorð er til, því að það er sannað með því, að maðurinn hefir í engu sýnt, að hann hafi sint þeirri grein sjerstaklega í mörg ár. Jeg neita því alls ekki á hinn bóginn, að dr. Sigurður Nordal sje mikilhæfur vísindamaður, en það er engin minkun manni, sem hefir lagt bókmentasögu aðallega fyrir sig, þó hann sje ekki fær um að kenna málfræðina vísindalega.

Jeg vil bæta því við, að til eru margir ágætismenn, sem eru vel að sjer í íslenskum fræðum, en þeir eru ógn fáir, sem jeg þekki til, að sjeu vísindalega vel að sjer í íslensku. Kannske í mesta lagi 4–5 menn á seinni tíma. Er það rangt hjá hv. þm. (JJ), að jeg niðri öðrum, þó jeg segi þann sannleika.

Munurinn á okkur háttv. þm. (JJ) er sá, að jeg geri kröfurnar miklu hærri að því er þetta snertir en hann segist gera, en jeg veit, að hann meinar í raun og veru annað en orð hans bera vott um.