19.03.1925
Neðri deild: 37. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í B-deild Alþingistíðinda. (829)
29. mál, aðflutningsbann á áfengi
Forsætisráðherra (JM):
Jeg get verið ánægður með álit hv. nefndar, sjerstaklega minni hl. Og sömuleiðis með álit meiri hl. að því leyti, er hann viðurkennir frv. gagnlegt eins og það liggur fyrir.
Mjer skilst, að aðalbreytingin, er nefndin vill gera á frv., sje sú, að afnema hið svonefnda læknabrennivín. Jeg skal ekki segja neitt um það, hvort nauðsyn er á því að hafa slíka heimild fyrir lækna. Mig brestur þekking á því, hvers virði spiritus eða brennivín er til lækninga. Jeg hefi að vísu haldið, að það væri ekki jafnnauðsynlegt og margir læknar segja. Þó er það víst, að víðsvegar um heim telja læknar áfengi nauðsynlegt læknislyf, og þá er varhugavert að banna lækmun að nota það. Ef samþykt læknafundarins á Akureyri í sumar hefði staðið ómótmælt, þá hefði máske mátt taka hana til greina. En síðan sá fundur var haldinn, hefir komið í ljós, að þetta var ekki álit læknastjettarinnar íslensku í heild. Jeg hefi minst á þetta atriði við þann lækni, er jeg treysti best af öllum læknum landsins, og hann taldi að vísu ekki nauðsynlegt að hafa áfengi, spiritus, brennivín eða konjak, til lækninga, en á hinn bóginn ekki tiltækilegt að meina læknum að nota vín, sem annars er leyfilegt að selja í landinu. Það er og vitanlegt, að hægt er að gefa út lyfseðla á ýmsar áfengisblöndur, sem komið geta í stað brennivíns, og það hefir sýnt sig í máli, sem hjer hefir komið fyrir dómstólana. Þó mætti takmarka misbrúkun á því að gefa út slíkar lyfjaávísanir, t. d. á sama hátt og gert er í Bandaríkjunum, að læknar þurfi sjerstakt leyfi til þess að gefa þær ávísanir. Auðvitað má hugsa sjer ýmsa vegu í þessu, en með frv. er reynt að koma í veg fyrir misbrúkun í þessu efni.
Það er alveg rjett, að læknar hafa misbrúkað rjett sinn, enda hafa þeir verið sektaðir fyrir það. Jeg hefi reynt að láta rannsaka sem best slík brot og nýlega hefir verið kveðinn upp dómur, er fer í þá átt að sýkna lækni, þótt hann hafi ekki fylgt reglugerðinni frá 1922. Eins og nú stendur horfir málið þannig við, að verði dóminum ekki breytt í hæstarjetti, þá verður læknir ekki brotlegur, þótt hann fari út fyrir þau takmörk, sem sett eru. En auðvitað verður dóminum áfrýjað.
Jeg reyndi að semja frv. þannig, að auðveldara væri en áður að takmarka misnotkun í þessu efni. Vil jeg ráðleggja háttv. deild að samþykkja ekki brtt. hv. meiri hl., heldur láta frv. ganga fram eins og það er.
Aðrar brtt. meiri hl. eru minni háttar, svo sem um leyfi Eimskipafjelagsins til þess að hafa áfengi á skipum sínum, og um hið svokallaða konsúlabrennivín. Um Eimskipafjelagið er það rjett, sem hv. þm. V.-Sk. (JK) sagði, að skip þessi eru aðþrengd í samkepni við önnur fjelög, og er því athugavert að svifta þau þeim rjetti, er öllum öðrum skipum er heimilaður. Og satt að segja tel jeg það lítilsvirði fyrir bannlögin, hvort heimild þessi er eða ekki. Jeg veit, að framkvæmdastjóra Eimskipafjelagsins er ekki vel við vínveitingar á skipum þess og vildi helst vera laus við þær, en hann telur það býsna mikið óhagræði fyrir skipin, ef þau hefðu ekki sama rjett í þessu efni og önnur skip, sem keppa við þau.
Hv. frsm. meiri hl. (JBald) sagði, að sendimenn annara ríkja væru ekki of góðir til þess að lifa undir sömu lögum og við sjálfir. En alstaðar annarsstaðar hafa þeir sjerstöðu í þessu efni, og það er viðurkent í alþjóðarjetti, að þeir skuli hafa hana. Og við erum ekki meiri menn, þótt við breyttum út frá því, Að minsta kosti hafa Bandaríkin ekki haldið sig svo mikil, að þau gætu breytt út af þessu, enda þótt þar hafi fyrir skemstu, hjá einni sendiherrasveitinni, komið fyrir stórkostleg misnotkun á þessu leyfi. Tel jeg því ekki rjett gagnvart þessum fáu erlendu sendimönnum, sem hjer eru og ekki er vitanlegt um, að hafi nokkru sinni misbrúkað þennan rjett sinn, að svifta þá honum.
Mjer var sagt (jeg var þá ekki hjer í deildinni), að hv. frsm. meiri hl. hefði talað um slælega framkvæmd bannlaganna. Jeg skil ekki, hvaða áhrif það ætti að hafa á málið hjer í deildinni.
Þetta mál er svo margrætt þing eftir þing, að jeg hygg, að hv. þdm. þurfi ekki frekari skýringa. Vil jeg leggja til, að hv. þm. láti frv. ganga fram óbreytt. Það miðar að því að gera framkvæmd bannlaganna auðveldari, og um refsiákvæðin hygg jeg, að sæmilega sje gætt hófs. Hygg jeg, að með því sjeu gerðar svo sæmilegar bætur á bannlögunum, að bæði bannmönnum og öðrum sje óhætt að samþykkja það.
Ein breyting, sem ekki er tekin upp í frv., gæti að sjálfsögðu orðið bannmálinu að miklu gagni, sú, að setja einn rannsóknardómara fyrir alt landið fyrir það mál. Jeg býst við, að hv. nefnd hafi ekki sjeð sjer fært heldur að koma fram með þá brtt. að þessu sinni. Slíkt mundi að vísu kosta nokkuð, en það hefði legið næst að gera þá breytingu, ef breyta ætti frekar.