06.05.1925
Efri deild: 69. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1632 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

29. mál, aðflutningsbann á áfengi

Frsm. (Jónas Jónsson):

Allshn. hefir orðið sammála um að mæla með því, að þetta frv. verði samþykt óbreytt; þó vil jeg ekki halda því fram, að allir nefndarmenn sjeu að öllu leyti ánægðir með frv., síst á þann hátt, að það eru margir menn, sem álíta eins og t. d. jeg, að þörf sje á miklu víðtækari umbót á bannlögunum en þetta frv. gerir ráð fyrir. En vegna þess að varla þarf að vænta, að á þessu þingi verði hægt að koma fram verulegri efnisbreytingu á þeim lögum, þar eð svo áliðið er þingtímans, og þetta frv. felur í sjer ýmsar þær breytingar á lögunum, sem nefndin telur til bóta, viljum við leggja það til við háttv. deild, að frv. verði samþykt, og skal jeg nú í fám orðum skýra frá, hvaða breytingar á bannlögunum það eru, sem hjer ræðir um.

Þegar bannlögin voru sett árið 1909, var gert ráð fyrir, að leitt yrði í lög algert vínbann hjer á landi; en nú hefir framkvæmdin orðið önnur, og er hjer nú sem stendur ekki um að ræða bann gegn öðrum vínum en sterkum, brendum drykkjum, en leyfður innflutningur á flestum þeim vínum öðrum, sem siðað fólk drekkur. Þess vegna er í rauninni ekki rjett að tala um bann hjer á landi eins og nú standa sakir. Það ber bæði við hjer og annarsstaðar erlendis, þar sem hömlur eru lagðar á verslun með áfengi, að þangað koma oft skip hlaðin áfengi og bíða úti fyrir ströndum landsins tækifæris til að koma áfenginu í land og selja það þar. Þegar bannlögin voru sett hjer, var ekki gert ráð fyrir þessháttar athæfi, og þess vegna vantar í lögin viðeigandi hegningarákvæði um þvílíka lögbrjóta, eins og t. d. „Marian“ og „Veiðibjölluna“ o. fl. Það voru engir staðir til í lögum vorum, sem þessi skip yrðu dæmd eftir. Á þessari vöntun bannlaganna ræður frv. það, sem hjer ræðir um, nokkra bót, er það heimilar að dæma skipin upptæk. Eykur það áhættuna við slíka verslun og ætti að miða til þess að draga úr ásókninni um að koma víni hjer á land. Ennfremur hefir hingað til vantað heimildir í lögin til að láta skipin vera að veði fyrir málskostnaði af málarekstri út af þvílíkum bannlagabrotum, en sá málskostnaður er oft allmikill, og þegar sumir sökudólgarnir hafa sloppið á braut og fengið að halda skipunum, hafa oftast nær þeir, sem dæmdir hafa verið fyrir sökina, gert sig gjaldþrota, og þannig hafa sektirnar sjaldnast fengist greiddar. Frv. ræður einnig bót á þessu. Flestar aðrar breytingar frv. eru smávægilegar aðeins.

En í sambandi við afgreiðslu þessa máls ætla jeg að víkja nokkrum orðum að hæstv. forsrh. (JM). Þegar nefndin hafði þetta mál til meðferðar, fjekk hún þrjá lækna til að koma á fund við sig, landlækni, formann Læknafjelags Íslands og formann Læknafjelags Reykjavíkur, og ræddu þeir málið við nefndina og afstöðu lækna yfirleitt til áfengislöggjafarinnar. Það er alkunna, að læknastjettin hefir orðið fyrir talsverðu ámæli fyrir það, að nokkrir læknar, — þeir eru ekki margir sem betur fer, — hafa gert sjer áfengissölu að atvinnu, eða öllu heldur sölu lyfseðla á áfengi. Af þessum ástæðum varð það á læknaþingi á Akureyri fyrir nokkru síðan, að meiri hl. lækna á því þingi ákvað að frábiðja læknum þau rjettindi að mega gefa út lyfseðla á áfengi.

Þetta var mjög merkilegur viðburður, er þarna voru samankomnir margir helstu læknar landsins og meiri hluti þeirra frábiður sjer rjettinn til að vera áfengissalar. Þó að þeir hefðu fengið þetta veitt, mundu samt margir hjeraðslæknar eftir sem áður hafa áfengi undir höndum, en í bæjum, þar sem eru lyfjabúðir eða skamt er til þeirra, þar mundi verða talið óþarft að gefa út áfengislyfseðla.

Með tilliti til þessarar samþyktar læknaþingsins á Akureyri gerði síðan landlæknir uppkast að frv. um þetta efni, en Læknafjelag Reykjavíkur gat ekki fallist á það, þrátt fyrir að meiri hluti lækna hefði samþykt þetta á Akureyri. í Reykjavík og þar í grend virðist meiri hluti lækna vera á móti samþyktinni frá Akureyri og vill halda núverandi ástandi í þessu máli. Það mun aðallega vera af fræðilegum ástæðum, að meiri hl. lækna vill heldur halda í þau rjettindi, að læknar megi ávísa með lyfseðlum hverju sem er og þeir telja notandi til lækninga, og jafnvel áfengi; en þó er það ljóst, að læknastjettin er klofin um þetta mál, og eru báðir hlutar líklega nokkurn Veginn jafnsterkir að höfðatölu. Helmingur læknastjettarinnar játar því notkun áfengisins. Frv., sem landlæknir gerði og vildi að stjórnin bæri fram, byggir á samþykt Akureyrarfundarins. Jeg býst við, að landlæknir hafi afhent landsstjórninni þetta uppkast sitt, en hún hafi ekki treyst sjer til að fylgja því máli fram, en hallast heldur að áliti og tillögum reykvísku læknanna. Enda þótt nefndin mæli með samþykt frv. eins og það er, kom það ótvírætt í ljós hjá tveimur læknunum af þessum þremur, að þeir teldu æskilegt, að eitthvað yrði sett í lög til að takmarka áfengisseðlaútgáfuna, og hefir nefndin því falið mjer að spyrja hæstv. forsrh. (JM), hvort hann treysti sjer ekki til að lofa því að leggja fyrir næsta þing frv. um takmörkun á hinu svonefnda læknabrennivíni og hafa það frv. í samræmi við nýjustu löggjöf um þetta efni, sem sett hefir verið í Noregi. Landlæknir lagði áherslu á það við nefndina, að vegna embættisfærslu lækna og vegna læknastjettarinnar yfir höfuð, vildi hann helst losna við þessa lyfseðlaútgáfu á áfengi. Vildi landlæknir fá nefndina til að bera fram þáltill. um þetta efni, en við sáum ekki ástæðu til að bera fram sjerstaka þáltill. um þetta, ef hæstv. forsrh. (JM) vildi lofa því að láta endurbæta lögin að þessu leyti á næsta ári. Jeg má hafa það eftir landlækni, að hann hefir sagt, að þessi tilbreytni hefir haft góð áhrif í Noregi. Læknar þar verða nú síður fyrir ámæli af vínsölu, og jeg býst við því, er áfengislöggjöf okkar í flestu er hliðstæð áfengislöggjöf Norðmanna, að við gætum líka grætt á þessu. Að endingu vil jeg taka það fram, að þessi nýja tilhögun um læknabrennivín verður að ná til dýralækna.