27.04.1925
Neðri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1658 í B-deild Alþingistíðinda. (871)

9. mál, vatnsorkusérleyfi

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg hefi litlu að svara hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) öðru en því, að mjer finst 2. gr. frv. fullskýr eins og hún er. Þar segir að ekki sje heimilt án leyfis stjórnarinnar að virkja vatnsfall, er stærra sje en 500 eðlishestöfl. Mjer skilst, að leyfi hjer sje sama og sjerleyfi, og svo er alstaðar í frv., þar sem svo er að orði komist, og verð jeg því að líta svo á, að till. sje ekki þörf þessu til skýringar. Hv. þm. (Svó) vjek ekki að öðrum galla, sem jeg nefndi áður á till. hans, og verð jeg að líta svo á, að hann hafi gengið inn á athugasemd mína.

Um sjerleyfistímann, hvort hann er settur 50 eða 75 ár, er það að segja, að hjer er aðeins um hámark að ræða. Jeg get gjarnan sagt það, að jeg geri ráð fyrir, að fyrstu leyfin verði veitt til lengri tíma en hin síðari. (TrÞ: Það er alveg rjett). Því það þarf sjerstaklega að varast að fæla menn frá í byrjun, með því að setja skilyrðin alt of ströng. En, hvaða stjórn sem er ætti að vera treystandi til þess að fara ekki lengra um leyfistímann en nauðsynlegt er.

Hv. þm. Str. (TrÞ) kvartaði undan því, hvað frv. kæmi seint frá nefndinni. En það er sjálfsagt meira atvikin um það að saka en nefndina. Hún hefir ekki verið lengur með málið en búast mátti við. Og nú hefir hún afgreitt það með meðmælum sínum, og er jeg henni þakklátur fyrir það. Jeg skil ekki heldur í því, að það þurfi að brýna þingmenn á því að flaustra ekki af málinu. Það er búið að vefjast svo lengi fyrir Alþingi, að það yrði varla nefnt flaustur, þótt því yrði nú lokið á þessu þingi. Jeg held, að óhætt sje að segja það, að ekki hafi mörg mál verið athuguð oftar í nefndum og á annan hátt hjer í þinginu en þetta, svo það er fjarri öllum sanni að tala um flaustur í þessu sambandi.

Þá er fyrirspurn hv. þm. Str. um það, hvort það sje á döfinni að hefja virkjun. Þessu skal jeg svara, enda hefi jeg áður afhent hv. allshn. öll gögn um þetta atriði. Það kom beiðni til stjórnarinnar um leyfi til þess að virkja Urriðafoss í Þjórsá, frá innlendu fjelagi. Þessu svaraði stjórnin svo, að hún væri fús á að veita sjerleyfið, ef saman gengi um skilmála. Síðan var spurt um það, hvort leyfi mundi fást til þess að leggja járnbraut, og því var svarað, að þetta væri líka samningsatriði. Lengra er þessu ekki komið, en ef hv. þm. (TrÞ) vill sjá skjölin, þá eru þau nú í höndum hv. allshn. Og sje þess óskað, skal jeg nú lesa hjer upp brjefin frá atvinnumálaráðuneytinu, sem við koma þessu máli. (TrÞ: Það væri mjög gott. Þau koma þá í þingtíðindunum). Brjefin eru tvö og eru til kaupmannanna Friðriks og Sturlu Jónssona. Fyrra brjefið er dags. 31. maí f. á. og hljóðar svo (með leyfi hæstv. forseta):

„Í brjefi, dags. 15. þ. m., hafið þjer, háttvirtu kaupmenn, farið þess á leit, að ráðuneytið veiti yður leyfi til þess að láta starfrækja vatnsorku þá í Þjórsá, sem h/f „Titan“ á, og jafnframt hafið þjer skýrt frá því, að þjer hafið umráð yfir svo miklu hlutafjármagni, sem þarf til þess að gera ráðstafanir um eignir tjeös hlutafjelags. Ennfremur hafið þjer í tjeðu brjefi tekið það fram, að fyrst um sinn sje tilgangurinn að byggja aðeins út Urriðafoss að meira eða minna leyti.

Út af þessu er yður hjer með tjáð, að ráðuneytið mun veita yður leyfi til þess að byggja út Urriðafoss í Þjórsá að meira eða minna leyti, með því skilyrði, að saman gangi um skilmála alla milli yðar og ráðuneytisins.“

Þá er síðara brjefið, frá 19. sept. f. á., til sömu manna:

„Í brjefi, dags. 22. f. m., hafið þjer, háttvirtu herrar, farið þess á leit, að leyfishöfum til starfrækslu á Urriðafossi, samkvæmt brjefi hjeðan, dags. 31. maí þ. á., verði heimilað að láta leggja járnbraut frá Reykjavík til Þjórsár.

Út af þessu þykir rjett að taka það fyrst fram, að með brjefi hjeðan til yðar, dags. 31. maí þ. á., er ekki veitt leyfi til þess að starfrækja Urriðafoss; heldur einungis gefið loforð um, að leyfi muni verða veitt, ef samningar takast um skilyrðin. Er því enn sem komið er ekki um neina leyfishafa til starfrækslu eða virkjunar Urriðafoss að ræða, og þegar af þessari ástæðu ekki unt að veita slíkum leyfishöfum hið umbeðna.

Hinsvegar mundi ráðuneytið vera fúst til að taka til yfirvegunar uppástungu um járnbrautarlagningu frá Reykjavík til Þjórsár, með eða án virkjunar á Urriðafossi, ef hún kemur fram frá yður. En þá verður fyrst og fremst að liggja fyrir uppástunga um legu og gerð brautarinnar, stöðvar, reksturstilhögun og því um líkt, eða frumdrættir að verkinu. Þar næst yrði að láta í tje vitneskju eða sýna líkur fyrir því, að umsækjendur hafi ráð yfir fjármagni til framkvæmdar verkinu, ef til kemur. Að þessu fengnu mundi ráðuneytið fúst til þess að láta uppi, með hvaða skilyrðum það vildi veita leyfi til umræddrar járnbrautarlagningar.

Þessi brjef getur hv. þm. Str. fengið að sjá, ef hann vill.