21.04.1925
Neðri deild: 61. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1713 í B-deild Alþingistíðinda. (924)
30. mál, laun embættismanna
Frsm. minni hl. (Klemens Jónsson):
Það ætlar ekki að fara betur fyrir mjer en hv. frsm. meiri hl. (MJ) hvað áheyrendur snertir, en ekki er annað að gera en að reyna að halda umr. áfram og koma henni af.
Jeg get byrjað á því að taka mjer þau orð hv. frsm. meiri hl. í munn, að í rauninni er ekki mikill ágreiningur um þetta mál, enda þótt nefndin hafi klofnað. Má og sjá þess merki á nál. beggja hluta nefndarinnar.
Það var og er öllum kunnugt, að dýrtíðaruppbót embættismanna, sem ákveðin var með launalögunum 1919, átti að falla niður í árslok 1925, samkv. beinum fyrirmælum í lögunum sjálfum.
Jeg vil ekki segja, að launin samkvæmt þeim lögum, og því síður dýrtíðaruppbótin, hafi verið vel þokkuð meðal almennings, því háværar raddir hafa heyrst um það víðsvegar af landinu, að dýrtíðaruppbótina bæri að afnema sem fyrst, og reynt hefir verið að afnema hana áður en lög stóðu til. Það var þó fyrirsjáanlegt, að algerlega myndi ókleift að afnema dýrtíðaruppbótina með öllu. Reynslan hefir sýnt, að hún þyrfti fremur að vera hærri en lægri, enda hækkaði hún talsvert síðastl. haust, þegar hún var reiknuð út fyrir árið sem nú er að líða. Það var því öllum ljóst, að þetta mál hlyti að koma fyrir yfirstandandi þing og verða eitt mesta vandamál, eða jafnvel eitt mesta vandræðamál, sem hjer yrði fjallað um. Satt að segja kveið jeg engu máli svo mjög sem þessu, vegna þess, hversu erfitt er að koma því í það horf, er allir megi una. Annarsvegar blasir við hin brýna þörf embættis- og sýslunarmanna ríkisins, en að hinu leytinu er fjárhagur ríkissjóðs engan veginn glæsilegur nú og allur annar en árið 1919, enda var þingið þá í örasta skapi. Mjer ljek því mikil forvitni á að sjá, hvernig hæstv. stjórn vildi láta skipa málinu að þessu sinni.
Flestir munu hafa verið þeirrar skoðunar, að stjórnin mundi leggja til að framlengja dýrtíðaruppbótina um eins eða tveggja ára skeið. Aðrir munu hafa haldið, að hún myndi ef til vill byggja dýrtíðaruppbótina á nýjum grundvelli, enda er ekki hægt að neita því, að allmikil óánægja hefir verið með grundvöll núgildandi launalaga, einkum hjer í Reykjavík.
Fyrra atriðinu til stuðnings skal jeg nú leyfa mjer að vitna í þingmálafundarsamþyktir um þetta mál, þó að svo virðist, sem það hafi ekki verið tekið til meðferðar á nærri því öllum þingmálafundum, sem haldnir hafa verið fyrir þetta þing. Í Suður-Þingeyjarsýslu vill fundur afnema dýrtíðaruppbótina þegar á þessu ári, eða svo fljótt, sem unt er. Fundur í Norður-Múlasýslu telur ókleift að greiða þessa uppbót lengur, eins og ástæður eru. Í þessum tveim kjördæmum er því þannig haldið fram, að afnema beri dýrtíðaruppbótina þegar í stað. Annarsstaðar er farið vægar í sakirnar. í tveimur kjördæmum, Austur-Húnavatnssýslu og Suður-Múlasýslu, er samþykt að halda lögunum óbreyttum eitt ár enn. Á Akureyri vill þingmálafundur framlengja gildi þeirra í 2 ár, og í Skagafirði næstu ár. í Rangárvallasýslu er skorað á Alþingi að fara gætilega í málið, en engin samþykt gerð um tímatakmark, og í Árnessýslu er samþykt áskorun um að ráða fram úr málinu á sem heppilegastan hátt.
Allir þessir fundir leggja til, að gætilega sje farið í mál þetta, eða að gildi launalaganna sje framlengt í 1–2 ár. Víðast eru skýrar óskir um, að lögunum verði ekki breytt að öðru leyti eins og sakir standa. Þær óskir hygg jeg vera óþarfar, því að jeg ímynda mjer, að engum hafi dottið í hug að gera gagngerðar breytingar á launalögunum á þessu þingi. Hafi tímarnir 1919 verið óheppilegir til að ákveða þá laun embættismanna ríkisins, þá eru tímarnir nú enn óheppilegri til þeirra hluta. Þess vegna mun engum hafa komið til hugar að breyta launalögunum í nokkru verulegu að þessu sinni.
Þetta stjfrv. fer nú ekki fram á að framlengja gildi laganna um 1 eða 2 ár, eins og jeg hefði helst búist við, heldur um óákveðinn tíma, eða þangað til þingið ákveður öðruvísi. Þetta ákvæði gat minni hl. fjhn. ekki fallist á. Minni hl. vill hafa gildi laganna tímabundið, því að þá er meiri trygging fyrir því, að þingið hafi nánar gætur á þessum málum. Ef lögin eru t. d. framlengd til ársloka 1927, þá athugar þingið það ár, hvort ástæða sje til að framlengja gildi laganna enn á ný, og svo koll af kolli. Þingið missir ekki sjónar af málinu.
Þar að auki sýnir reynslan, að erfitt er að fá lög afnumin, en hinsvegar hægara að fá þeim breytt. Og einkum mun reynast erfitt að fá þessi lög afnumin, þegar til kemur, þar sem svo fjölmenn embættismannastjett á í hlut og hefir þar allra sinna hagsmuna að gæta.
Þegar að því kom, hve lengi skyldi framlengja gildi launalaganna, var minni hl. ekki allsendis sammála.
Mjer var aldrei neitt kappsmál, hvort lögin yrðu framlengd einu ári lengur eða skemur, aðeins ef þau yrðu framlengd um ákveðinn tíma. Það var og er aðalatriðið í mínum augum. Sumir vildu aðeins framlengja í 1 ár, en þó varð að samkomulagi, að minni hl. leggur til, að gildi laganna verði framlengt um tveggja ára skeið, eins og ýmsir þingmálafundir hafa lagt til. Á þetta atriði legg jeg mesta áherslu, og vænti jeg þess, að háttv. deild verði minni hl. sammála um, að þessi lausn sje heppilegri en stungið er upp á í stjfrv.
Í greinargerð stjfrv. segir hæstv. stjórn, að hún hafi ekki fundið betri grundvöll til að ákveða eftir dýrtíðaruppbótina en er í gildandi lögum, enda hafi hann yfirleitt reynst vel. Vill hæstv. stjórn sýna fram á þetta með dæmum, sem jeg skal ekki vefengja, þar sem jeg treysti mjer ekki til að benda á heppilegri grundvöll í fljótu bragði.
En ef svo fer, sem jeg vona, að ákvæði gildandi launalaga verði framlengd um tveggja ára skeið, þá vil jeg mega vænta þess, að hæstv. stjórn noti þetta tímabil til þess að rannsaka, hvort ekki megi ákveða dýrtíðaruppbótina samkv. heppilegri grundvelli, því hann er ekki sem rjettlátastur og kemur einkum hart niður í Reykjavík.
Þeir embættismenn, sem á síðustu árum hafa verið svo óheppnir að setjast að í Reykjavík, hafa beinlínis orðið að sæta afarkostum um húsaleigu t. d. Við, sem eldri erum og vorum svo lánsamir að hafa eignast húskofa yfir okkur, höfum ekki eins mikið af húsnæðisdýrtíðinni að segja.
Jeg minnist þess, að meðan jeg var ráðherra kom til mín nefnd frá embættismönnum í því skyni að fá styrk úr ríkissjóði til húsabygginga. Þessi nefnd upplýsti, að þeir væru ekki fáir, embættismennirnir, sem greiddu 38–41% af launum sínum fyrir húsaleigu eina saman. Þetta er afskapleg upphæð og ekki óeðlilegt, að reynt verði að kippa þessu í lag að einhverju leyti.
Aðalefnisbreytingin, sem stjfrv. vill gera á núgildandi launalögum, er sú, að hámarksákvæði þeirra um samanlögð laun og dýrtíðaruppbót verði felt niður. Hámarkið er nú 9500 kr., en 10500 kr. fyrir hæstarjettardómendur. Þetta hámarksákvæði vill hæstv. stjórn nú fella úr gildi og engin takmörk setja fyrir því, hversu samanlögð laun og dýrtíðaruppbót geti numið hárri upphæð. Minni hl. gat ekki fallist á þessa till. Jeg skal játa, að hjer er ekki um stórvægilega upphæð að ræða. Ef 60% dýrtíðaruppbót er lögð til grundvallar, hefir breyting þessi um 11500 kr. aukin útgjöld í för með sjer. Fyrst fengju 3 ráðherrar 2700 kr. hver, eða samtals 8100 kr., og er það mestur hluti allrar upphæðarinnar. Þá fengi dómstjóri hæstarjettar 2100 kr. launaviðbót og loks hver hinna dómaranna, landlæknir, aðalpóstmeistari og biskup 200 kr. hver. Þetta eru ekki svo háar upphæðir, að hægt sje að sjá ofsjónum yfir þeim, en þó brýtur afnám hámarksákvæðisins í bág við það „princip“, sem fylgt hefir verið í máli þessu síðan launalögin voru sett, enda mælir engin sanngirni með því, að þessir fáu embættismenn, sem þó eru best launaðir allra embættismanna þjóðarinnar, fái einir uppbót. Hætt er við, að aðrir komi á eftir og þykist eins vel að því komnir að fá, þó ekki væri nema 200 kr. uppbót launa sinna. Þó það sje ekki mikil upphæð, þá munar hvern einstakan talsvert um hana. T. d. má nú kaupa um 3 smálestir af kolum fyrir 200 kr., svo að þær eru ekki alveg einskis virði fyrir fátæka og illa launaða embættismenn.
Að því er laun ráðherranna snertir, þá er jeg öldungis sammála hv. frsm. meiri hl. (MJ) um, að þeir eru að mínu viti langverst launaðir allra embættismanna þjóðarinnar. Laun þeirra eru hreint og beint skammarleg. Eins og hv. frsm. (MJ) tók fram, eru ótal minniháttar sýslanir margfalt betur launaðar en ráðherraembættin, þó að þau sjeu ábyrgðarmestu embætti þjóðarinnar. Jeg verð að segja, að svo framarlega sem þessu heldur áfram, þá fást ekki aðrir til þess að gegna ráðherraembættum hjer á landi en sterkefnaðir menn, sem þola að gefa með sjer í embættinu. En jeg get varla ímyndað mjer, að hv. þm. vilji viðurkenna, að hið eina nauðsynlega skilyrði til að takast á hendur ráðherraembætti sje, að hlutaðeigandi sje sterkríkur maður. Jeg held, að menn sjeu alment miklu fremur á gagnstæðri skoðun. En 10 þús. kr. laun í æðstu embættum þjóðarinnar eru smánarlaun og jeg veit, að ráðherrar hljóta að leggja á borð með sjer úr eigin vasa. Get jeg og varla álitið, að menn telji það sjerstök hlunnindi, að þessir embættismenn eru allra manna mest svívirtir opinberlega, en það er eina uppbótin, sem þeir fá nú.
Það kom til umtals í nefndinni að bæta þeim upp, sem lægst eru launaðir, og í raun og veru var öll nefndin sammála um, að það væri sanngjarnt. Það kom í ljós, að fengnum upplýsingum frá stjórninni, að til þess mundi þurfa 40 þús. kr. Af því að nú er mikil sparnaðaralda uppi og kjósendur heimta, að ekki sje bruðlað með landsfje, þá gat minni hl. ekki fallist á þetta. En hinsvegar álít jeg sanngjarnt, að aukauppbót verði veitt þeim, sem allra verst verða úti, til dæmis skrifurum og aðstoðarmönnum stjórnarráðsins.
Aðstoðarmenn eru t. d. komnir upp í 3000 kr. laun eftir 15 ár. Þetta er óviðunandi, þar sem þetta eru þó menn, sem orðið hafa að stunda dýrt nám. Þessum mönnum legg jeg til að bætt verði upp, og má gera það með auknu skrifstofufje eða aths. í fjárlögum, sem heimili stjórninni slíkt. Jeg greiði atkvæði með launahækkun, þar sem líkt stendur á. En jeg treystist ekki til að styðja launahækkun heilla flokka embættismanna, nema símameyja, sem áætluð er 11 þús. kr. í fjárlögum. Það mætti kannske eitthvað hækka.
En 40 þús. kr. var of hátt. Það gat jeg ekki fallist á. — Jeg hefi nú í stuttu máli tekið fram skoðun minni hl. á þessu.
Jeg sje, að fram er komin brtt. frá hv. 2. þm. Skagf. (JS), og býst jeg við, að jeg hallist að henni.