21.04.1925
Neðri deild: 61. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (927)
30. mál, laun embættismanna
Ásgeir Ásgeirsson:
Jeg á litla brtt. við viðaukatill. háttv. meiri hl. Þar er ætlast til, að barnakennarar njóti sömu hlunninda og viðaukatill. ætlar öðrum lágt launuðum starfsmönnum. Jeg tek undir það með hv. 2. þm. Skagf. (JS), að ef veita á öðrum aukadýrtíðaruppbót, er erfitt að setja barnakennarana hjá. Það þarf ekki að lýsa því, að sú stjett á við þröngan kost að búa, og ef menn vilja bæta lágt launuðum embættismönnum upp laun þeirra, mælir síst nokkur sanngirni með því að auka á misrjetti þessarar einu stjettar. Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um till. mína. Jeg vænti þess fastlega og þykist þess fullviss, að þeir, sem á annað borð samþ. viðaukatill. hv. meiri hl., muni og ljá minni till. atkv. sín.