24.04.1925
Neðri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (934)

30. mál, laun embættismanna

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vildi aðeins tala fáein orð út af brtt., sem hv. 4. þm. Reykv. (MJ) bar fram við 2. umr., um að dýrtíðaruppbót sveitapresta yrði ekki lækkuð, heldur fengju þeir hlutfallslega sömu uppbót og aðrir embættismenn. Sú till. komst ekki fram þá, en nú er að þessu sinni farinn meðalvegurinn, og má þá búast við, að hv. þm. taki því vel. Hvað rökin fyrir þessari till. snertir, þá get jeg látið mjer nægja að vísa til ræðu hv. 4. þm. Reykv. við 2. umr. Mjer finst sú stefna, sem nú er uppi, að embættismenn keppa úr sveitunum í kaupstaðina, ekki svo heillavænleg, að rjett sje af ríkinu að þrengja svo kosti prestanna, að þeir geti ekki haldist við í sveitum. Jeg get ekki með neinu móti sætt mig við, að starfsmenn ríkisins í sveitum sjeu settir skör lægra en aðrir. Jeg krefst þess, að svo sje um búið, að sveitirnar eigi jafnan kost á að fá góða starfsmenn sem kaupstaðirnir. Saga prestastjettar vorrar og starfsemi þeirra fyrir þjóðina á öllum tímum hefir líka verið svo merkileg og mikil, að ríkið ætti að hugsa sig tvisvar um áður en það fer lengra í því en gert hefir verið að þröngva hag þeirra. Jeg verð að segja það, að þessi stjett, sem hjer á hlut að máli, á þessa viðurkenningu fyllilega skilið, og er þetta hin fylsta rjettlætiskrafa.