24.04.1925
Neðri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (937)
30. mál, laun embættismanna
Fjármálaráðherra (JÞ):
Jeg stend upp til að staðfesta það, sem hv. frsm. minni hl. (KIJ) sagði um afstöðu mína til brtt. á þskj. 379. Jeg get fallist á, að í stað orðanna: „Þangað til öðruvísi verður með lögum ákveðið“ komi: til ársloka 1928. Það ár er nýkosið þing, og tekur það málið að sjálfsögðu til athugunar. Á hinn bóginn getur það og haft talsverða þýðingu, að þetta sje tímabundið.
Um hina brtt. þarf jeg ekkert að segja, nema taka undir lof hv. þm. Str. (TrÞ) um prestana, en jeg er ekki undir það búinn að segja, hve mikið hún kostar ríkissjóð.