09.03.1925
Neðri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (968)

23. mál, atvinna við siglingar

Hákon Kristófersson:

Jeg get ekki orða bundist um það, að jeg tel sum ákvæði frv. þessa mjög varhugaverð. Einkum tel jeg farið inn á ranga braut með fyrirmælum 2. gr., um að heimila stjórninni að veita fiskiskipstjórum með minnaprófi rjettindi meiraprófsmanna, þegar þeir hafa verið skipstjórar ákveðið árabil. Tel jeg með því stigið spor aftur á bak og öryggi skipshafna beinlínis í hættu stefnt, ef slaka á nú á kröfunum um kunnáttu skipstjóra, á þann hátt, sem hjer er lagt til, og auk þess hætta á, að slíkri heimild geti orðið misbeitt.

Þá þykir mjer og ótækt niðurlagsákvæði 3. gr., sem hv. Ed. setti inn í frv., um að losa fiskibáta, alt að 30 rúmlesta, í veiðistöðum, þar sem bátar koma að jafnaði daglega að, undan skyldu til þess að hafa stýrimann auk skipstjóra.

Það er öllum kunnugt, að á slíkum stöðum getur það oft komið fyrir, að bátar verða að liggja úti veðurs vegna, og ef svo skyldi þá fara, að skipstjóra tæki út, eða hann sýktist svo skyndilega, að hann yrði ófær til skipstjórnar, þá er það auðsætt, hversu hættulegt það er, ef ekki er þá til taks siglingafróður stýrimaður, er geti tekið við og skylt sje að taka við stjórninni. Álít jeg því mjög viðurhlutamikið að lögfesta slíka undantekningu.

Vænti jeg þess, að nefnd sú, er mál þetta fær til meðferðar, væntanlega hv. sjútvn., taki þessi atriði, er jeg nefndi, til rækilegrar athugunar og sjái sjer fært að gera tillögur um að fella þessi óheppilegu ákvæði burt úr frv., eða breyta þeim svo, að við sje unandi.