07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1753 í B-deild Alþingistíðinda. (972)

23. mál, atvinna við siglingar

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg fyrir mitt leyti hefi ekkert að athuga við það, að 2. gr. verði feld niður. Henni var bætt inn í hv. Ed., en var ekki í stjfrv. í byrjun. Jeg efast bara um, að háttv. Ed. vilji nokkuð við frv. eiga, ef þessi grein er feld burt. Út af endurskoðun laganna skal jeg taka það fram, að jeg vil í sjálfu sjer ekki skorast undan, að láta „fagmenn“ fara yfir þau aftur. En það er svo um lög sem þessi, að þeim er altaf verið að breyta. Þó að stjórnin láti forstöðumann stýrimannaskólans undirbúa þau, hreytir þingið þeim eftir sínu höfði. Síðasta dæmið er frá þessu þingi. Jeg hefi því ekki mikla trú á endurskoðun þessara laga, en skal taka það atriði til athugunar.