07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1764 í B-deild Alþingistíðinda. (979)

23. mál, atvinna við siglingar

Jón Auðunn Jónsson:

Háttv. frsm. (JakM) sagði, að í þessu máli væri oftast meira farið eftir hagsmunum manna en eftir lögunum. Sjálfur get jeg ekki sagt um þetta, því að jeg hefi ekki nú í seinni tíð, eða síðan 1918, gert út báta.

En það, sem jeg vil í þessu máli, er það, að kröfurnar sjeu sniðnar svo, að trygt sje líf og limir manna, og jafnframt tekið tillit til þess, að mennirnir geti fengið bein úr sjó.

Það er vitanlega sjálfsagt að taka tillit til þeirra fagfróðu manna, sem þetta mál hafa látið til sín taka. En mjer finst mega athuga, hvað sje álit hins „fagfróða“ manns, sem hjer er vitnað í. Það mun vera til álitsskjal frá honum, þar sem hann segir, að minnapróf nægi til að sigla skipum kringum land. Enda munu þeir, sem numið hafa bók hans í siglingarfræði, sem ætluð er til minnaprófs, kunna að hagnýta sjer hana; ekki aðeins vera færir um að sigla skipum kringum land, heldur geta þeir vel siglt skipum landa á milli, og jeg þekki marga, sem hafa gert það. En það mun vera önnur aðstaða, sem knýr þennan „fagfróða“ mann til að leggjast á móti þessari undanþágu, sú ástæða, að hann vill hlynna að skóla sínum, þannig að sem flestir sæki hann. En að því leyti hefir honum skjátlast í fyrra, með reglugerð þeirri, sem sett var fyrir skólann. Því eigi eftir henni að fara, er víst, að þeir, sem ekki hafa átt kost því betri undirbúningsmentunar, geta ekki komist þar inn, og ekki langt frá að þurfi fullkomna gagnfræðamentun til þess. Hinir fátækari piltar eru því mjög illa settir í þessu tilliti.

Þá mintist háttv. frsm. á ásiglingar, sem orðið hefðu. En um þær er mjer ekki kunnugt. Að minsta kosti þekki jeg ekkert tilfelli, nema það, sem vildi til á höfninni hjer í vetur. En slíkt getur hent meiraprófsmenn líka. Þó að bátar rekist saman í Sandgerði eða öðrum vondum höfnum, vegna þrengsla og ýmsra annara óviðráðanlegra orsaka, er ekki vanþekkingu um að kenna.

Háttv. þm. Barð. sagðist betur treysta mjer til að veita þessar undanþágur en stjórninni. (HK: Það hefi jeg aldrei sagt). Jeg vona, að háttv. þingmaður fari ekki að taka aftur hrósið um mig.

Háttv. 1. þm. G.-K. (ÁF) sýndi, sem vænta mátti, mestan skilning á þessu máli. Hann viðurkendi, að smáskipstjóraprófsmenn væru misjafnir, eins og aðrir sjómenn, og tók rjettilega fram, að þeir af smáskipaprófsmönnum, sem kunnað hefðu vel hin minni fræði og væru ábyggilegir í starfi sínu, hefðu fyllilega staðið hinum á sporði. Nægilega sönnun fyrir þessu tel jeg hina miklu hygni og varfærni, sem Ísfirskir minnaprófsskipstjórar hafa sýnt í sjósókn sinni á Faxaflóa undanfarnar vertíðir, þar sem þeir hafa stundað þar sjóróðra á 8–15 skipum margar vertíðir án þess að nokkurt slys hafi orðið, að undanteknu einu skipi, sem fórst 1914. En þar mun ekki vanþekkingu hafa verið um að kenna, heldur óviðráðanlegu ofviðri. Þetta er sönnun þess, að margir minnaprófsmenn eru fyllilega færir tun að stjórna stærri skipum.