07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í B-deild Alþingistíðinda. (980)
23. mál, atvinna við siglingar
Hákon Kristófersson:
Það var dálítill misskilningur hjá háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ), þar sem hann sagði, að jeg hefði sagt, að jeg treysti honum betur til að veita þessar umræddu undanþágur en stjórninni. Þetta voru alls ekki mín orð, og vona jeg, að hv. þm. muni, hvað jeg sagði, þegar hann fer að athuga sig betur, svo að jeg þurfi ekki að fara að endurtaka það nú.
Hv. þm. Borgf. (PO) mæltist til þess, að frv. þetta yrði samþykt, af því að það væri til mikillar tryggingar fyrir sjómennina. Um það er ekkert að segja, því að það er sjálfsögð skylda að halda uppi öllu því, er miðar til tryggingar þeim.
Það gætti dálítils misskilnings hjá hv. 1. þm. G.-K. (ÁF), þegar hann var að tala um, að altaf væru tveir siglingafróðir menn á sama mótorskipi. Munurinn er sá, að þegar enginn er lögskráður stýrimaður, þá ber engum frekar en öðrum skylda til að taka við skipstjórn, ef skipstjóri forfallast. En ef stýrimaðurinn er lögskráður, þá er hann beinlínis skyldur til að taka við af hinum, þegar þess er þörf.