18.02.1925
Neðri deild: 10. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1768 í B-deild Alþingistíðinda. (989)
27. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Fjármálaráðherra (JÞ):
Frv. þetta, sem fengið hefir allítarlegan undirbúning, er samið og borið fram samkvæmt loforði, er stjórnin gaf á síðasta þingi, þegar rætt var um stofnun búnaðarlánadeildar við Landsbanka Íslands. Þykir mjer rjett að lýsa aðdraganda málsins með nokkrum orðum.
Það hefir síðustu áratugina verið áhyggjuefni flestum þeim mönnum, sem fást við landsmál, að fólkinu í sveitunum hefir ekki fjölgað neitt, fremur fækkað, jafnframt því sem kaupstaðir og sjávarþorp hafa dregið til sín alla fólksfjölgun landsins, og meira en það. Menn hafa sjeð, að þetta stóð í nánu sambandi við annað fyrirbrigði, sem þá var ekki síður áhyggjuefni, sem sje að framfarirnar í atvinnurekstri sveitanna, landbúnaðinum, voru svo hægfara í samanburði við stórstígar framfarir sjávarútvegsins, að stundum sýndist vera kyrstaða hjá landbúnaðinum, þótt svo væri nú raunar ekki. Nú er svo komið, að sjávarútvegurinn er að talsverðu og sívaxandi leyti rekinn með þeim fullkomnustu tækjum og aðferðum, sem til eru í heiminum, og upp og ofan með góðum fjárhagsárangri fyrir þá, sem atvinnuna stunda. Það er því siður en svo, að undanförnu árin hafi dregið nokkuð úr mismun hraðans, sem verið hefir á þróun sjávarútvegs og landbúnaðar. Hættan á því, að jafnvæginu milli sveita og sjóplássa haldi áfram að halla er ennþá fyrir hendi í fullum mæli.
Sjálft áhyggjuefnið er ekki fjárhagslegs eðlis. Að öðru jöfnu er það ekkert fjártap fyrir neitt þjóðfjelag, þótt menn hverfi frá atvinnu með seinteknum og ef til vill litlum arði, og að annari innlendri atvinnu, sem gefur fljótteknari og sennilega meiri arð. En menning vor hefir frá fornu fari verið sveitamenning, og vjer viljum ekki láta hana ganga úr sjer. Bæjamenning er hjer á landi svo að segja alveg í byrjun; í henni er ekki ennþá nein sú festa, sem þarf til þess, að hún ein geti haldið óslitnum meginþáttunum í menningu þjóðarinnar, ef sveitamenningin gengur úr sjer. Hjer við bætist, að vjer fulltíða mennirnir, sem langflestir erum aldir upp í sveit, höfum þá ást á sveitamenningunni, sem er æskumenning okkar sjálfra, að vjer viljum með engu móti horfa upp á neina hnignun hennar, ef vjer fáum við ráðið.
Um fátt hefir verið meira rætt og ritað á seinni árum en nauðsyn þess að stöðva þennan straum úr sveitunum, og ráðin til þess. Í þeim umræðum hefir m. a. komið fram sú skoðun, að sveitirnar færu á mis við lánsfjeð í landinu, hafi ekki fengið sinn tiltölulegan hluta af því, og að þess vegna hafi verklegu framfarirnar þar orðið minni en í bæjunum; úr þessu þurfi að bæta með greiðari aðgangi að lánum fyrir sveitamenn, og þá einkanlega jarðaveðlánum.
Við þessa skoðun er nú ýmislegt að athuga, og þá fyrst það, að engan veginn eru öll þau lán, sem sveitamönnum eða jarðeigendum eru veitt, landbúnaði til eflingar, hvorki hjer nje annarsstaðar. Það fer alveg eftir því, til hvers lánsfjenu er varið. — Tökum dæmi af sjálfseignarbónda, sem vill selja jörð sína til þess að geta brugðið búskap og flust í kaupstað. Hann getur byrjað með því að taka lán gegn veði í jörðinni, svo hátt sem fæst. Þá er auðveldara að selja, því að kaupandi þarf ekki að svara út því, sem á jörðinni hvílir. Seljandinn fer með lánsfjeð í kaupstaðinn, kaupir kannske hús fyrir það, en kaupandi jarðarinnar situr eftir með skuldina. Landbúnaðurinn verður að borga skuldina, en hefir ekki notið eins eyris af lánsfjenu. Þannig mætti telja mörg dæmi um þessi áhleðslulán, sem hlaða má á jarðirnar án þess að lánsfjeð verði á neinn hátt atvinnuveginum til hags. Reynsla annara landa sýnir, að því greiðari sem aðgangurinn er að slíkum áhleðslulánum, því meir hækka jarðirnar í verði, þar með jarðarafgjöldin, landbúnaðinum til byrðarauka en einskis gagns. — Í flestum löndum Norðurálfunnar hafa þessi áhleðslulán jarða um eitthvert skeið keyrt svo úr hófi, að byrðin hefir orðið landbúnaðinum lítt bærileg, og hagfræðingar og fjármálamenn hafa talið þau eitthvert hið mesta þjóðarböl. Það er alveg auðsjeð, að íslenskur landbúnaður verður ekki rjettur úr kútnum með því að greiða fyrir slíkum lánveitingum.
Nokkuð kann það og að vera orðum aukið, hve afskiftir sveitamenn hafa orðið lánsfjenu í landinu, þegar á alt er litið. Landsbankinn hefir undanfarin ár lánað kaupfjelögum bænda svo nokkrum miljónum skiftir. Þetta lánsfje hefir gengið til verslunarrekstrar bænda, og eins og alt annað fje, sem notað er til verslunar. hefir það aðallega legið í húsum og mannvirkjum í kauptúnunum, í vörubirgðum og í útistandandi skuldum kaupfjelaganna, eða kaupstaðarskuldum bænda. Jeg fyrir mitt leyti vil alls ekki draga í efa, að þetta mikla lánsfje hafi bætt verslun bænda, og þannig komið landbúnaðinum að gagni, en heima á bændabýlunum eru ekki miklar sýnilegar menjar þessa lánsfjár, sem ekki er heldur von. Nefna má og, að Landsbankinn hefir fyrir fáum árum stofnað útibú í einni af sveitum landsins, Árnessýslu neðanverðri, og var tilgangurinn eflaust sá, að veita sveitamönnum með því greiðari aðgang að lánum, atvinnuveginum til eflingar. Þetta hefir nú farið svo, að mjög mikið lánsfje hefir runnið frá útibúinu út í nærliggjandi sveitir, en ekki er sjáanlegt, að af því hafi leitt aukning á bústofni eða umbætur á húsum eða jarðabætur fram yfir það, er gerst hefir á sama tíma í öðrum hjeruðum. En skuldir manna í nágrenninu eru svo miklar, að þær mega sannarlega heita hjeraðsböl; það veit jeg bæði af persónulegum kunnugleika og af öðrum upplýsingum, og ef allar sveitir landsins væru jafndjúpt sokknar í samskonar skuldir, þá væri það sem stendur okkar langstærsta þjóðarböl.
Af þessu má það vera ljóst, að þegar lagt er til að efla landbúnaðinn með lánveitingum, þá verður fyrst og fremst að varast þá villigötu að íþyngja honum með áherslulánum eða freista manna með eyðslulánum. Nú er það auðsjeð, að aukning ræktaða landsins er eina varanlega undirstaðan undir efnalegum framförum og aukinni framleiðslu í sveitunum, og þar með liggur í augum uppi, að fyrst og fremst ber að tryggja það, að lánsfjenu sje í raun og veru varið til jarðræktar. Tilætlunin með þessu frv. er fyrst og fremst sú, að tryggja mönnum lánsfje í þessu skyni. Aukin ræktun heimtar á eftir sjer aukin húsakynni fyrir fóðurforða, búfje og menn, og er ætlast til, að frv. megi einnig verða til liðsinningar í því efni. Loks heimtar ræktunin aukinn bústofn, og er ætlast til, að frv., sem atvinnumálaráðherra hefir borið hjer fram um heimild til lánveitinga úr bjargráðasjóði, geti bætt úr lánsþörf á því sviði.
Fyrsta sporið í þá átt að koma upp sjerstakri lánsstofnun handa landbúnaðinum var stofnun ræktunarsjóðs Íslands árið 1900, og jafnframt er ákveðið, að fje úr honum skuli einungis nota til jarðabóta og annara framkvæmda, er að jarðrækt lúta. Sýnir þetta, að mönnum var það ljóst fyrir 25 árum síðan, að sjerstök ástæða var til þess að sjá fyrir lánsfje í þessum ákveðna tilgangi. En sjóðurinn þótti ekki hafa nóg fjármagn til útlána, og frá 1913 urðu raddirnar um sjerstaka lánsstofnun fyrir landbúnaðinn háværari. Málinu lyktaði í það sinn með því, að Böðvar Bjarkan lögfræðingur tók málið til rannsóknar fyrir stjórnina árið 1920. komst að þeirri niðurstöðu, að tiltækilegast væri að hafa eina sameiginlega veðlánastofnun fyrir sveitir og sjópláss, og það leiddi til að sett voru lögin 27. júní 1921 um ríkisveðbanka Íslands, sem eru ekki komin til framkvæmda ennþá, í því skyni að bæta úr brýnustu þörfum um stundarsakir voru svo á síðasta Alþingi sett lögin um stofnun búnaðarlánadeildar við Landsbankann. Sú lagasetning er að ýmsu leyti mjög ófullkomin, einkum að því er snertir útvegun fjárins til útlánanna, og ekki líkleg til að koma að miklum notum, meðal annars af því að stjórn Landsbankans, sem lánin á að veita, hefir frá upphafi talið lögin óhagkvæm fyrir bankann og verið mjög ófús til þess að framkvæma þau, þótt samkomulag hafi nú náðst um það, sem af bankastjórnarinnar hálfu er bygt á trausti þess, að með frv. því, sem hjer liggur fyrir, verði málinu komið í það horf, að bankinn megi við una. En þótt lögin um búnaðarlánadeildina sjeu mjög ófullkomin að þessu leyti, þá er í þeim skýrt mörkuð sama heilbrigða stefnan og í ræktunarsjóðslögunum fyrstu, að lánin á eingöngu að veita til umbóta á býlunum, húsabætur nú teknar með, í viðbót við jarðabæturnar, og áskilið a. m. k. þriðjungs framlag frá lántakanda sjálfum til umbótarinnar.
Til undirbúnings endanlegri úrlausn málsins samdi fjármálaráðuneytið fyrst uppkast að lögum um jarðræktarflokk við veðdeild Landsbankans, sem skyldi gefa út vaxtabrjef (jarðræktarbrjef trygð eftir svipuðum reglum og brjef gömlu veðdeildarflokkanna, en fjenu varið eingöngu til jarðræktarlána). Þetta uppkast var svo sent Landsbankanum og Búnaðarfjelagi Íslands til athugunar. Með samþykki stjórnarráðsins skipaði Búnaðarfjelag Íslands þriggja manna nefnd til þess að íhuga málið í heild, þá Thor Jensen framkvæmdarstjóra (form.), Sigurð Sigurðsson búnaðarmálastjóra og Halldór Vilhjálmsson skólastjóra. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu, að heppilegra væri að hafa stofnunina sjálfstæða og byggja hana upp á ræktunarsjóðnum. Samdi nefndin í góðri samvinnu við landsstjórnina upp- kast að lögum um þetta og tók m. a. upp í það ýms af þeim nýmælum, sem orðuð höfðu verið í uppkasti ráðuneytisins um jarðræktarflokkinn, þar á meðal ákvæði um, að varasjóður 1. fl. veðdeildar skuli renna til stofnunarinnar, að lán megi veita leiguliðum á opinberum eignum gegn afgjaldskvöð og inn samvinnu við alla sparisjóði og bankaútibú á landinu um vaxtabrjefasölu. Með því að stjórnin gat í öllum aðalatriðum fallist á tillögu nefndarinnar, var uppkast hennar lagt til grundvallar við samningu stjórnarfrv. þess, er hjer liggur fyrir.
Fyrir mig persónulega var það sjerstakt ánægjuefni, að nefndin vildi byggja upp veðlánsstofnun til jarðabóta á grundvelli ræktunarsjóðsins. Á mínu fyrsta þingi, 1921, bar jeg fram tillögur í sömu átt í sambandi við ríkisveðbankalögin, en þær náðu ekki fram að ganga. Af hlífð við ríkisveðbankalögin vildi jeg nú ekki eiga frumkvæði að því í annað sinn að losa ræktunarsjóðinn með sínu sjerstaka verkefni út úr ríkisveðbankanum fyrirhugaða, en þegar nú þessi upphaflega tillaga mín er borin fram á ný af rjettum fulltrúum landbúnaðarins, þá get jeg ekki annað en tekið við henni með ánægju, því að skoðun mín hefir ekkert breyst um það, að þetta er ákjósanlegasta úrræðið.
Efni frv. er þá í fáum orðum þetta: Ræktunarsjóðurinn, sem nú nemur tæpri 1 milj. kr., á framvegis að fá að aukast af sínum eigin vöxtum — núna geldur hann ríkissjóði um 25 þús. kr. árlega í vexti. Ennfremur fær hann varasjóð 1. fl. veðdeildar, þegar sá sjóður losnar. Eftir 10 ár á hann að vera orðinn yfir l1/2 milj. kr. Fjármagn til aukinna útlána útvegar sjóðurinn sjer með sölu vaxtabrjefa, eins og allar veðlánsstofnanir, og má vera í umferð alt að sexfaldri upphæð sjóðsins sjálfs, eða ekki minna en 9 milj. kr. eftir 10 ár. Fjeð lánar hann út til jarðabóta og til varanlegra húsabóta á bættum jörðum, til mismunandi langs tíma eftir tegund jarðabótarinnar, 5 til 20 ára. Venjulega eru lánin borguð út eftir á, þegar umbótin er fullgerð, en heimilað er, þegar ástæður eru fyrir hendi, að greiða lánin út jafnóðum og verkinu miðar áfram. Upphæð lánanna miðast við verðmæti umbótanna og má vera alt að 1/2 af verði jarðarbótar og alt að af verði húsabótar. Tryggingar mega vera fasteignarveð, afgjaldskvöð á opinberum eignum eða ábyrgð sveitarfjelags. Sjóðnum sje stjórnað af framkvæmdarstjóra með 4000 til 5000 kr. launum og tveim gæslustjórum, er fá 600 króna ársþóknun. Landsbankinn hafi fyrst um sinn, þangað til stjórn sjóðsins ákveður annað, afgreiðslustörf á hendi gegn umsaminni þóknun, búnaðarlánadeild hans falli niður, en ræktunarsjóður taki við lánum þeim, er úr henni hafa verið veitt, og greiði bankanum með vaxtabrjefum eftir nafnverði. Lán má veita út á jarðabætur, sem gerðar hafa verið 1924 eða síðar.
Þetta eru aðalákvæðin. Í ýmsum atriðum er breytt til frá uppkasti nefndarinnar, þar á meðal um stjórn sjóðsins, um samband hans við Landsbankann, og svo er umbætt það, sem ekki var nægilega skýrt orðað í nefndaruppkastinu, að upphæð lánanna skuli miða við verðmæti umbótarinnar, felt burtu ákvæði um að stofnanir skulu á sínum tíma renna inn í ríkisveðbankann o. fl. Þessar breytingar voru bornar undir þá tvo nefndarmenn, sem staddir voru í bænum, þegar stjórnarfrv. var samið, og eru samþyktar af þeim.
En í tveim talsvert mikilvægum atriðum eru tillögur nefndarinnar ekki að öllu teknar til greina. Hið fyrra er aukning ræktunarsjóðsins sjálfs, með h. u. b. 2,50 þús. kr. beinu framlagi úr ríkissjóði og með útflutningsgjaldi á afurðum og aðflutningsgjaldi á vörum í 3 ár, er væntanlega mundi gefa hátt upp í 1 milj. kr. Stjórnin hefir ekki getað sannfærst um, að þörf mundi vera á svo mikilli vaxtabrjefaútgáfu fyrstu árin, að þessi aukning sjóðsins sje nauðsynleg. Eins og sjóðurinn er nú má gefa út 51/2 milj. kr. í vaxtabrjefum, svo ört sem þörfin krefur, hækkandi eftir því sem sjóðurinn vex upp í h. u. b. 9 milj. eftir 10 ár, og er trúlegt, að þetta nægi fyrstu árin, þegar athugað er, að allir veðdeildarflokkar Landsbankans til samans hafa aldrei haft mikið yfir 6 milj. kr. af vaxtabrjefum í umferð. Eftir þeirri tillögu stjórnarinnar að reyna að greiða að fullu lausaskuldir ríkissjóðs á næstu þrem árum, virðist óhjákvæmilegt að hlífa honum við stórum útgjöldum, sem eigi eru bráðnauðsynleg, þrjú árin. Ef það af einhverjum ástæðum, sem stjórnin hefir þó ekki komið auga á, þykir nauðsynlegt að auka sjóðinn á þessum þrem næstu árum, þá má gera það með tollhækkunum, svipuðum þeim og nefndin hefir stungið upp á. Er síður en svo, að nokkuð sje fjárhagslega óheilbrigt í því, að menn leggi á sig aukin gjöld til þess að safna í sjóð. Þó ætti einnig þetta að verða landsmönnum ljettbærara eftir að greiðslu lausaskulda ríkissjóðs er lokið.
Hitt atriðið, þar sem nokkru munar á tillögum nefndarinnar og þessu stjórnarfrv., er ákvæði þau, er miða að því að tryggja sölu vaxtabrjefanna. Þar fer stjórnarfrv. sumstaðar lengra en nefndin, og sumstaðar styttra. Fult samkomulag er um það meginatriði að setja vexti brjefanna svo háa, að þau seljist sem næst nafnverði, af því að afföll mundu verða lántakendum óhagstæð, þar sem ráðgert er, að lánin verði ekki til mjög langs tíma. Nefndin áleit, að eftir núverandi ástandi peningamarkaðsins þyrftu vextirnir að vera 6%, og tók beint ákvæði þar að lútandi í frv. sitt, sem og stjórnin tók upp. Efasamt er þó, að rjett sje að þetta standi beinlínis í lögunum; ástandið gæti breyst eitthvað til hausts. En áherslu verður að leggja á þá stefnu, að fullir vextir, þeir er peningamarkaðurinn heimtar, sjeu greiddir af lánsfjenu, en að styrkur sá, sem þörf þykir að veita til umbótanna, sje greiddur beint úr ríkissjóði. Ef reynt er að þrengja vöxtunum niður fyrir það, sem ástand peningamarkaðsins útheimtir, þá þverra peningalindirnar og kyrkingur kemur í allar framkvæmdir. Þyki vextir af háir, er betra að bæta það upp með hærri styrk, til þess að lánsupphæðin megi vera minni og árgjaldið ekki hærra en hóflegt þykir. Um samvinnu við sparisjóði og bankaútibú til fyrirgreiðslu á brjefasölu er líka fult samkomulag. Þá er í þessu stjórnarfrv. stungið upp á mjög mikilvægri ráðstöfun til að tryggja brjefasöluna, umfram það er nefndin fór fram á, sem sje að ríkissjóður taki fulla ábyrgð á greiðslu brjefanna. Með þessu eru brjefin gerð fullkomlega jafntrygg þeim best trygðu brjefum, sem til eru og til verða í landinu, m. a. gerð seljanleg og veðhæf í útlöndum.
Loks hefir nefndin stungið upp á beinum ákvæðum til að tryggja sölu á nokkurri brjefafúlgu til Landsbankans og til erlendra tryggingarfjelaga. Þessar tillögur eru ekki teknar upp í stjfrv., að nokkru af því, að efasamt þykir, að þær eigi heima í þessum lögum, þó menn vildu lögleiða þær, en aðallega þó af þeirri ástæðu, að stjórnin býst við að geta stungið upp á öðrum úrræðum til þess að tryggja talsvert meiri brjefasölu en nefndin fer fram á, fyrstu árin. En þau úrræði standa í nokkru sambandi við önnur mál, sem liggja fyrir þessu þingi, og þótti því rjettara að ræða þau fyrst við hlutaðeigandi nefndir, en ekki að taka þau upp í sjálft stjfrv. Þær ráðstafanir, sem jeg hefi í huga, mundu þrjú fyrstu árin tryggja sjóðnum eins mikið fjármagn með vaxtabrjefasölu, ef hann þarf á því að halda til útlána, eins og tillögur nefndarinnar fara fram á að honum sje útvegað með framlagi úr ríkissjóði og með tollhækkunum. Yfir höfuð tel jeg alveg sjálfsagt, að sjeð verði fyrir því, að sjóðurinn hafi nægilegt fje úr að spila, svo að jarðræktarmenn geti jafnan átt það víst, að þeir geti fengið lán út á hverja fullgerða jarðabót, ef lögmæltar tryggingar eru fyrir hendi. —
Jeg hefi orðið þess áskynja úr ýmsum áttum, að til eru bændur, og þeir ekki allfáir, sem hafa ótrú á því, að hægt sje að hjálpa landbúnaðinum með lánveitingum. Sú ótrú mun byggjast á því, að þessir menn sjá ekki, að lán þau, sem hingað til hafa verið veitt til landbúnaðar, hafi verið allskostar rjettilega notuð, eins og jeg drap á fyr í ræðu minni. En jeg verð að halda því fram, að eins og málum er nú komið, þá eru nú nokkur ný og betri skilyrði fyrir hendi til þess að lánveitingar til landbúnaðar megi koma að rjettari notum en áður. Hefi jeg einkum í huga tvenskonar verklegar framfarir, sem mönnum hefir lærst að færa sjer í nyt á síðustu árum. Annarsvegar hefir, fyrir forgöngu ýmissa góðra manna, sem sumir hafa verið og sumir eru enn í þjónustu Búnaðarfjelags Íslands, tekist að fá nokkra reynslu fyrir því, að hjer á landi má með góðum árangri nota tilbúinn áburð, hvort sem menn vilja heldur rækta nýtt land eða halda við áður ræktuðu. Tilbúinn áburður hefir nú verið notaður þannig á nokkrum bændabýlum, og hefir fengist nægileg staðfesting á þessari reynslu. En við þetta hverfur, að því er mjer virðist, einn aðalhemillinn, sem alt fram til þessa hefir verið á jarðrækt hjer á landi. Það er áburðarmagnið, sem hingað til hefir einkum sett aukinni ræktun landsins takmörk. Ef nú efnalegar kringumstæður bænda leyfa þeim að færa sjer þessa nýju þekkingu í nyt, þá er þess að vænta, að einn aðalþröskuldurinn á vegi nýræktar hjer á landi hverfi úr sögunni.
Hitt, sem telja má til mikilsverðra framfara, er það, að á allra síðustu árum hafa menn lært, hvernig byggja megi góð og hlý og þó varanleg hús í sveitum hjer á landi. Hús, sem hæfa vel hinu ómilda loftslagi, sem við eigum við að búa.
Þessar tvenskonar verklegu framfarir, sem fyrst hefir fengist ábyggileg reynsla fyrir nú á allra síðustu árum, gera það aðgengilegra en áður var að nota lánsfje til umbóta á býlum landsins, jafnframt því sem þær veita meiri tryggingu fyrir því, að slík lán beri tilætlaðan árangur.
Hvort sem það tekst að hleypa nýju fjöri í landbúnað hjer á landi með þessum lánveitingum, eða ekki, þá hefi jeg ekki komið auga á önnur úrræði, sem mjer þykja líklegri til eflingar þessa annars aðalatvinnuvegs landsmanna.
En vald okkar, sem lögin setjum, er lítið í þessum efnum.
Það er ekki lagt okkur á vald, hvernig tekst að ná tilgangi þessara laga. Aðalverkið hlýtur að bíða bændanna sjálfra. Ef þeir hafa ekki þá trú eða þrek, sem þarf til þess að færa sjer í nyt þá möguleika, sem slík löggjöf býður þeim þá er unnið fyrir gýg. En jeg fyrir mitt leyti þykist vera þess fullviss, að þótt framkvæmdin samkv. frv. þessu kunni að verða hægfara til að byrja með, þá muni þeim smáfjölga, sem nota sjer slíka löggjöf til umbóta á býlum sínum, og að þessi lagasetning geti því með tímanum orðið mikilvægur þáttur í þeirri viðreisn landbúnaðar vors, sem allir eru sammála um, að sje nauðsynleg.
Mjer er mál þetta svo mikið áhugamál, að jeg hefi talið sjálfsagt, að því væri haldið utan við allar flokkadeilur, og þykist jeg hafa gert mitt til þess, að svo mætti verða. Mjer kemur því ekki til hugar að eigna mínum flokki sjerstakan heiður af málinu, og veit að því er fyrir bestu, að framvegis verði unnið að því í góðu samkomulagi milli allra flokka. Þó get jeg ekki stilt mig um að taka það fram, að málefni þetta fellur alveg sjerstaklega vel inn í hugsjónir yngsta stjórnmálaflokksins í landinu, Íhaldsflokksins, um skipulag þjóðfjelagsins.
Hugsjón flokksins er sú, að þá sje skipulag þjóðfjelagsins best, þegar það er samsafn sem flestra efnalega sjálfstæðra, og sem frjálsastra eininga, fyrst og fremst heimila, þar sem hver fær að neyta krafta sinna sem mest eftir sínum eigin vilja, innan þeirra vjebanda, er landslög setja. Með þessu móti verði drýgstur sá skerfur, er hver einstaklingur fær lagt til sameiginlegrar velgengni. Efni þessa frv. beinist beinlínis að umbótum á sjálfum heimilunum í sveitunum, bændabýlunum, og er þess vegna í svo nákvæmu samræmi við aðalhugsjón Íhaldsflokksins, að betur gæti ekki verið, þótt það væri sjermál þess flokks, sem það ekki er og ekki á að vera.