26.03.1926
Efri deild: 38. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)
55. mál, framlag til kæliskápakaupa o. fl.
Jónas Jónsson:
Jeg get vitanlega ekkert um það sagt, hvaða brjef hæstv. atvrh. hefir meðtekið. En hitt er mjer persónulega kunnugt um, að þetta brjef, sem jeg mintst á, var honum sent, því að jeg átti kost á að sjá það áður. En það hefir þá kannske ekki komið til skila, og á jeg þó bágt með að trúa því. Brjef þetta var skýrsla til stjórnarinnar um málið og till. trúnaðarmanna hennar um, hvað gera ætti. Og það var ekki nema eðlilegt, þó slíkar till. kæmu frá Jóni Árnasyni, sem ekki einungis er höfundur kæliskipshugmyndarinnar hjer, heldur á hann einnig sæti í stjórn Eimskipafjelags Íslands og hefir barist fyrir því þar að efla fjelagið og víkka starfsvið þess.