26.04.1926
Neðri deild: 62. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1429 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)

99. mál, vörutollur

Tryggvi Þórhallsson:

Það er vissulega lofsverður tilgangur hjá háttv. nefnd og mjög vinsælt verk að leggja það til að ljetta að einhverju leyti byrðunum af framleiðslunni, eins og segir í greinargerð þessa frv. Mjer þykir það leitt, að jeg býst við því, þótt um svo lofsverðan tilgang sje að ræða, ef þetta frv. á að ganga fram í þessari mynd, sem það er lagt fram í, að jeg muni neyðast til að greiða atkvæði á móti því. Það er vegna þess, að jeg álít naumast verjandi, eins og útlitið er, að lækka tekjur ríkissjóðs, og hinsvegar er þessi breyting svo einhliða, að jeg verð að álíta, ef á að ljetta af álögum á annað borð, þá eigi að bera annarsstaðar niður. Mjer dylst það ekki, að þetta er nálega einhliða stuðningur, sem á að veita sjávarútveginum, og þá einkum stórútgerðinni. Hv. nefnd hefir áætlað, að þessi lagabreyting muni hafa í för með sjer um 430 þús. kr. lækkun á skattinum; en þetta er nálega alt til hagsbóta fyrir sjávarútveginn. Af þessum 430 þús. kr. get jeg ekki gert ráð fyrir nema um 10 þús. kr. til lækkunar fyrir landbúnaðinn. Jeg vil að vísu ekki neita því, enda er það viðurkent af öllum, að sjávarútvegurinn þarf á þessu að halda, því að það eru slæmar horfur fyrir hann, en jeg er sannfærður um hitt, að menn tala ekki um, hve slæmar horfur sjeu fyrir atvinnurekstri bænda, vegna þess, að það er ekki komið á daginn enn, hvernig útkoman verður. Jeg er viss um, að það eru hliðstæðir erfiðleikar, sem bændurnir verða að glíma við á þessu ári eins og útgerðarmenn. Í þessu sambandi vil jeg beina því til háttv. nefndar, ef á að stíga spor til að ljetta á atvinnuvegunum, hvort ekki sje hægt að stíga það spor þannig, að það komi nokkuð jafnar niður á atvinnuvegunum heldur en gert er með þessu frv. Í vörutollslögunum eru tollaðar mjög margar nauðsynjar til landbúnaðar, en hinsvegar vil jeg benda á, að þar eru undanþegnar vörutolli ýmsar vörur, sem jeg álít, að ættu að vera tollaðar, t. d. hey og kjöt, sem nú er farið að flytja inn í stórum stíl. Þessu vildi jeg beina til háttv. nefndar, því að mjer dettur ekki í hug að greiða atkvæði á móti frv. nú við l. umr. þess. Svo vil jeg beina því til háttv. fjhn., úr því að hún fann ástæðu til þess, og það ekki að ástæðulausu, að reyna að gera eitthvað til hjálpar atvinnuvegunum, að jeg vil segja það sem mína skoðun alveg hiklaust, að háttv. nefnd hefir byrjað á alveg öfugum enda. Hv. 1. þm. N.-M. (HStef) kom að því líka, að hv. nefnd hefði farið eins og manninum, sem ætlaði að smíða bát og byrjaði á neglunni. Þessi tollbreyting, sem hjer er um að ræða, er ekki annað en að sýnast, því að fyrir atvinnuvegina munar hún sáralitlu. Það sem er stóra atriðið fyrir atvinnuvegina, er frv. um að festa verðgildi peninganna. Jeg hefi svo oft minst á það frv. hjer í þessari háttv. deild sem það, sem mest er um vert fyrir atvinnuvegina, að fá það verð skráð á peningunum, sem er í samræmi við kaupmátt þeirra. Frv. um það efni hefir nú legið fyrir nefndinni í meira en hálft hundrað daga. og um það hefir ekkert heyrst frá háttv. nefnd. Vil jeg lýsa mikilli óánægju yfir því, hve mikið skilningsleysi hún hefir sýnt með sínu athafnaleysi í því stórmáli, og jeg kalla það nærri því broslegt, að svona frv. skuli koma frá hv. nefnd, en ekki hreyft við hinu.