26.04.1926
Neðri deild: 62. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1431 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)
99. mál, vörutollur
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg get lýst yfir því, að jeg tala hálfnauðugur í þessu máli og hefði gjarnan kosið að þurfa ekkert um það að segja, en finst, úr því að farið er að ræða það mál, að þá geti jeg ekki algerlega setið hjá án þess að láta skoðun mína í ljós. Jeg get lýst yfir því að jeg er sammála þeim háttv. þm., sem hafa komið fram með þetta frv., að þeir hafa síst komið með það að nauðsynjalausu. Því miður mun þannig ástatt fyrir sjávarútveginum, að það mun ekki vera um skör fram, að háttv. fjhn. kemur með þetta frv., til þess að ljetta eitthvað þær þungu skattabyrðar, sem hann hefir. Það sem jeg meinti með því, að jeg talaði nauðugur í þessu máli, get jeg skýrt með því, að jeg hefði gjarnan kosið, að útlit þessa atvinnuvegar hefði verið það gott, að ekki hefði þurft til þessa ráðs að taka til að ljetta af honum skattabyrðinni. En nú er komið sem komið er, að ekki verður hjá því komist að gera honum eitthvað til ljettis, og jeg hygg, að það sje svo, að þótt þingið vildi skella við skollaeyrunum, þá sje það ekki hægt. En hinu get jeg lýst yfir, að jeg greiði nauðugur atkvæði með þeim lækkunum, vegna þess að jeg tel nauðsyn ríkissjóðs mjög mikla til að halda sínum tekjum. Samkv. því fjárlagafrv., sem fyrir liggur, er gert ráð fyrir mjög miklum framkvæmdum á næsta ári, og nú er ekki hægt að sjá, hvernig tekjum landsins kann að verða háttað á því ári, sjerstaklega ef við skerðum mjög mikið þá tekjuvon, sem landið nú hefir; eigi að síður býst jeg við, að það geti gert ilt verra að halda við þeim sköttum, að atvinnuvegirnir af þeim sökum standist ekki þann kostnað, sem þeir þurfa að hafa. Þegar jeg sagðist tala nauðugur í þessu máli, átti jeg líka við það, að jeg hefði kosið, að sjávarútvegurinn hefði notað sínar miklu og góðu tekjur, sem honum fjellu í skaut árið 1924, og jafnvel líka árið l925, til þess að tryggja meira þessa atvinnugrein heldur en til þess að auka hana eins og raun er á orðin. Við meðferð fjárlaganna á þingi í fyrra var það látið í ljós, að hann hefði farið óvarlega, og þá óskað, að alt færi vel, þó að ekki hefði verið varlega farið og af lítilli forsjá gert, og þetta kom líka á daginn. En ef sú ráðabreytni, sem hefir átt sjer stað á síðustu árum, hefir aðeins snert sjávarútveginn, sú aukning og það mikla kapphlaup, sem þá var um vinnukraftinn, þá hefði það ekki tekið svo mjög til allra landsmanna eins og það gerir nú. Jeg ætla nú ekki að fara ítarlega út í þær breytingar, sem þetta hefir skapað á síðasta ári, en drepa á nokkur atriði til þess að skýra það, að árin 1919 og 1920 hefur sjávarútvegurinn grimt kapphlaup við aðrar atvinnugreinir landsins. Jeg var mjög kunnugur þeirri starfsemi, sem þá átti sjer stað, og sá litli iðnaður, sem fyrir nokkrum árum var byrjaður hjer í bæ, beið mikinn hnekki við það mikla boð, sem gert var í hverskonar verkfæra menn. Landbúnaðurinn varð einnig að taka þátt í þessu kapphlaupi, en hefir ekki borið sitt bar síðan. Að þessu ári liðnu komst sjávarútvegurinn í mikinn vanda og stóð mjög höllum fæti til ársins 1924, sem var einstakt góðæri, og gekk honum þá mjög vel; losaði hann þá mikið af skuldum sínum, en síst af öllu gerði hann það, sem honum var nauðsynlegast. Hann safnaði ekki í sjóði, heldur lagði mjög mikið fjármagn í skip, til aukningar útveginum, gekk sæmilega síðasta ár, en svo nú, þegar markaðshorfur eru mjög slæmar, en tilkostnaður hinsvegar mjög mikill, og þá er við búist, að þingið finni til þess, að alt standi höllum fæti hjá þeim atvinnuvegi. Og þetta frv. er bein afleiðing af þessu ástandi. Nú á síðastliðnu ári varð sjávarútvegurinn nauðugur, viljugur að fylgja með, því að jeg býst við, að útvegsmönnum hafi ekki verið það ljúft, hve mikið kaup þeir urðu að greiða. Sama má segja um bændur landsins. Þeir urðu að hækka kaupið á móti vilja sínum og ýms kostnaður óx. En það er nú ekki aðeins önnur aðalatvinnugreinin, sem stendur höllum fæti; það eru þær báðar, og það er mikils um það vert að gefa því gætur, hvað hefir skapað þetta ástand, ef menn gætu lært af því og komið í veg fyrir, að þetta ástand endurtæki sig. Jeg get lýst yfir því, að jeg í sjálfu sjer mun ekki fylgja mikið ljúfara þessu frv. gegnum þingið, þótt það lækki að einhverju leyti skatta, sem snerta landbúnaðinn, því að jeg er smeykur við, að sú mikla tekjurýrnun verði að sök. Hinsvegar er ekki hægt að mótmæla því, þar sem allverulega ívilnun á að gera, að þá muni þess líka vera full þörf, því að atvinnuvegurinn stendur mjög höllum fæti líka. Hæstv. fjrh. mælti nú ekki á móti þessu frv. Mjer skildist á ræðu hans, að hann liti svo á, að þörfin fyrir að hækka skattana væri svo mikil, að ekki yrði hjá því komist. Jeg get lýst yfir minni skoðun um þetta, að jeg er hæstv. ráðherra sammála, en jeg vil skjóta því til þeirra hv. þm., sem þetta mál snertir og því eru kunnugir, að það væri æskilegt, að þeir beittu áhrifum sínum framvegis meðal sinna fjelaga, til þess að betri aðgæsla verði höfð í þessari atvinnugrein heldur en verið hefir síðasta ár, því að jeg veit ekki, hvort hægt væri að áfella svo mjög þá fulltrúa þjóðarinnar, sem verið hafa þeirrar skoðunar, að hin hraðfara aukning á þessari atvinnugrein hafi verið hættuleg þó að þeir síðar yrðu ófúsir á að ljetta svo mjög skattabyrðina, ef góðærin eftirleiðis yrðu meira notuð til aukningar útveginum heldur en hyggilegt væri, sjerstaklega þegar af aukningunni leiðir almenn hnekking á annari framleiðslu. Hæstv. ráðherra (JÞ) mintist á það, að gengishækkun síðasta árs hefði komið meira við sjávarútveginn heldur en landbúnaðinn. Jeg er í mjög miklum vafa um, hvort það snertir sjávarútveginn hlutfallslega meira en afurðir landbúnaðarins, því að þótt mikið af landbúnaðarafurðum sje selt innanlands, þá er það víst að verðlag á þeim verður að styðjast meira og minna við verðlag á samskonar vöru erlendis, svo að jeg býst við, að gengishækkunin hafi haft allveruleg áhrif á sölu hjá báðum atvinnuvegum. En þó að svo kunni að vera, að þessara áhrifa hafi ekki gætt stórkostlega á síðastliðnu ári, þá er það víst, að þeirra gætir verulega við sölu á afurðum þessa ára. Hinsvegar er það nokkurnveginn víst, að tilkostnaður við atvinnuvegina ætlar að verða svo dýr, að ekki er annað fyrirsjáanlegt en að atvinnuvegina verði að reka með stórtapi. Ef þannig hefði nú verið um fyrirfarandi ár, að þeir hefðu borið sig vel, þá hefði þetta frv. verið sök sjer; en þegar svo er farið, að það skiftir árum, sem meira eða minna tjón verður á atvinnuvegunum, þá fer það að verða ískyggilegt, og þá er ekki við öðru að búast en að það taki enda og meira að segja mjög leiðinlegan enda. Ef öll þesskonar starfsemi á að koma nokkurnveginn jafnvægi á framleiðslukostnað sinn, þá má sú aukning, sem á henni verður, ekki vera meiri en sem svarar því, sem fólkinu fjölgar í landinu, eða þeim breytingum, sem kunna að verða við það, að einhver starfsemi önnur kunni að vera lögð niður, af því að hún þyki ekki bera sig. En þessi mikli vöxtur, sem orðið hefir á sjávarútveginum, hefir haft þau áhrif, sem jeg nú hefi lýst, og ennfremur hefir hann haft þau áhrif, að fólk hefir streymt miklu meira úr sveitum landsins heldur en aukningunni hefir numið; því að það er ætíð svo, þegar fólk heyrir talað um hátt kaup einhversstaðar, þá flykkist það þangað, þar sem það býst við gulli og grænum skógum, og athugar þá ekki, hve mikinn tilkostnað það hefir við að lifa á þessum stöðum, og þekkir þá ekki til, hve margar vinnustundir falla úr hjá því. Af þessum ástæðum er fólkið ætíð of margt á þessum stöðum, en þetta á eingöngu við sjávarsíðuna.
Jeg hefi komið fram með þessar athugasemdir mínar til þess að minna á það, að þó að menn geri nú, undir þessum kringumstæðum, sem nú eru, þessar ívilnanir, þá er það þó í engan stað hyggilegt, að höfuðatvinnuvegur nokkurs lands stofni til svo mikillar aukningar, að aðrar atvinnugreinar landsins þrífist ekki fyrir það, og síðan þegar kreppa kemur, að ljetta þá sköttum af honum. Þess háttar breyting getur gengið eitt sinn, en sje það oft, með stuttu millibili, getur ekki farið öðruvísi en mjög illa fyrir þjóð, sem reisir sína helstu atvinnugrein á ekki betri undirstöðu heldur en þetta.