28.04.1926
Neðri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (1027)

99. mál, vörutollur

Fjármálaráðherra (JÞ):

Þessi umræða hefir farið talsvert á víð og dreif, sem og við var að búast, þar eð þráðurinn í umr. var skorinn sundur við það, er 1. umr. varð ekki lokið. Þess vegna hafa við þessa umr. komið fram ýms ummæli, sem jeg verð að athuga dálítið nánar, og vænti jeg að mjer leyfist að víkja örlítið út frá aðalefni þessarar umr., líkt og hv. frsm. hefir leyfst það.

Út af orðum hv. frsm., sem jeg get vel tekið undir að öðru leyti, — að stjórnin verði að gæta alls sparnaðar við samning næsta fjárlagafrv., — vil jeg segja það, að þetta dregur ekkert úr því, sem jeg sagði við 1. umr. þessa máls. — Ef það kemur í ljós þegar líður á árið 1927, að tekjur ríkissjóðs ætli ekki að hrökkva til þess, sem þeim er ætlað, þ. e. verða ónógar, þrátt fyrir allan og sjálfsagðan sparnað í útgjöldunum, þá verður á því ári að ráða bót á þessu með nærri lagasetningu.

Jeg er alveg sammála hv. frsm., að eins og stjórnskipulagi okkar er háttað og eins og hugsunarháttur manna er orðinn, bæði utan þings og innan, eru áreiðanlega engin önnur ráð til að halda útgjöldunum í hófi en að skamta (áætla) tekjurnar lágt, því að tekjuáætlunin ræður svo afarmiklu um útlit gjaldahliðar frv. Eins og nú er ástatt hjá okkur, má svo heita, að hver einasti maður, sem vill, ekki aðeins þingmenn sjálfir, heldur og hver utanþingsmaður, sem nennir að hafa fyrir því að fara hingað niður í þinghúsið til viðtals við einhverja þingmenn, hafi nær ótakmarkaðan rjett til að gera tillögur um aukning útgjalda ríkisins. Svona er nú sá andi, sem ríkir í þinginu sem stendur. Þetta var alt á annan veg á þinginu 1924, því þá var almennur ótti um það, að tekjurnar mundu reynast langtum ónógar, og sá ótti hafði þau áhrif, að útgjöldunum varð haldið í skefjum að talsverðum mun. Þess vegna hefir reynslan margfaldlega fært mönnum heim sanninn um það, að ef það á að spara á útgjaldahlið frv., verður fyrst að lækka tekjuáætlunina og svo miða útgjöldin þar eftir. Háttv. 1. þm. N.-M. (HStef) taldi það vera skollaleik og svikamyllu að vera að því að leggja auknar gjaldabyrðar og önnur óþægindi á atvinnuvegina með gengishækkuninni, en ljetta þó um leið af ýmsum sköttum. Öðruvísi mjer áður brá. Jeg held það sje varla hægt að finna dæmi um, að menn hafi farið rösklegar í gegnum sjálfa sig en þessi háttv. þm. (HStef), sem allra manna mest hefir áður kvartað fyrir hönd almennings undan lággenginu fyrir 2 árum síðan og hinum illu afleiðingum þess, er hann nú kemur með svona lagaðar yfirlýsingar um ágalla á gengishækkuninni. Fáir held jeg að hafi háværar heimtað, að ráðin væri bót á lággenginu en þessi hv. þm. (HStef), og hann taldi afskaplega heimsku að láta það eiga sjer stað. Þetta var að því leyti rjett hjá honum, að peningarnir voru látnir falla of langt niður, og var landslögum ekki fylgt í þeim efnum. Það var því rjett, sem háttv. þm. þá sagði, að það var engin heimild í lögum til að láta þetta gengisfall verða svo afskaplegt. En hitt er alveg eins rangt, að kalla það skollaleik og svikamyllu, þegar farið er að kippa þessu í lag aftur.

Því er ekki hægt að neita, að rjetting peninganna í samt lag aftur veldur erfiðleikum á ýmsum sviðum í þjóðfjelaginu, og þessir erfiðleikar koma allmisjafnt niður. Þess vegna er það rjettmætt, að löggjafarvaldið sje notað til að ljetta á þessu misrjetti, sem gengishækkunin hefir í för með sjer, og til þess er skattalöggjöfin best fallin. Þetta hefir og háttv. fjhn. sjeð, enda er það í samræmi við rökrjetta hugsun. Í aðalatriðunum eru það þeir atvinnurekendur, sem framleiðslu og um leið útflutning stunda, sem þessir örðugleikar hvíla þyngst á og bera því skarðastan hlut frá borði. En sá hluti almennings, sem er í þjónustu atvinnufyrirtækjanna og útflytjenda, t. d. verkafólk og annað launað starfsfólk, er hefir lífsuppeldi sitt af framleiðslunni, hefir stundarhagnað af gengishækkuninni. Þess vegna er það rökrjett hugsun að ljetta sköttunum á sjálfum atvinnufyrirtækjunum, og það gæti jafnvel verið rjett að þyngja þá heldur skattana á ýmsum öðrum sviðum. Háttv. fjhn. hefir nú ekki farið fram á að þyngja skatta neinsstaðar, en hún hefir gert till. um að ljetta á þeim þar, sem þeir hvíla þyngst á, t. d. á ýmsum atvinnufyrirtækjum, og er það, eins og jeg sagði áðan, alveg rökrjett athugað.

Hv. þm. Str. (TrÞ) skaut því fram við 1. umr., að enginn vörutollur væri lagður á erlent kjöt, sem flutt væri hjer inn, en þetta er misskilningur. Erlent kjöt er tollað samkv. ákvæðum 7. flokks laganna, og er því tollað í hæsta flokki, og auk þess er á því 20% verðtollur. Jeg efast þó ekki um, að það sje rjett, sem hv. þm. (TrÞ) upplýsti, að hjer sje rekin verslun með fryst útlent kjöt, en það sýnir aðeins, hve innlent kjöt er hjer í háu verði, er útlent kjöt getur kept við það á markaðinum með þessum háu tollum, sem á útlenda kjötið eru lagðir. (TrÞ: Menn munu brátt sjá, að verðið verður ekki það sama næsta haust hjer). Jú, kjötframleiðendur hjer á landi mega ekki verða óánægðir með sitt hlutskifti, þó að kjötið þeirra sje ekki ávalt í 50% hærra verði en í góðu meðalverslunarári. Það hafa úr ýmsum áttum komið fram umkvartanir yfir því, að verð á innlendum landbúnaðarafurðum væri alt of hátt og standi ekki í neinu skynsamlegu hlutfalli við framleiðslukostnaðinn. Jeg skal ekkert um það segja, hvort bændur endilega þurfa að fá svona hátt verð fyrir þær afurðir sínar, sem þeir selja á innlendum markaði: ef til vill þurfa þeir að fá nokkru hærra verð fyrir þær vegna þess hve erfiðar samgöngurnar eru og torvelt er að koma afurðunum á markað, en verðið er samt furðanlega hátt samkvæmt nýfengnum opinberum upplýsingum um þetta. Jeg skal skýra frá því, að hagstofan hefir reiknað út og gefið mjer skýrslur um verðlag í Reykjavík og verða þær síðar birtar. Nú er vísitala síðasta verðlags í Reykjavík á öllum vörum, innlendum og útlendum. 266, ef miðað er við, að vísitalan hafi árið 1914 verið 100. Meðalvísitala fyrir verðlag á útlendum vörum er nú í Reykjavík 235, en vísitala fyrir innlendar vörur er 306. Jeg segi því aðeins, að ef bændur finna ástæðu til að kvarta undan lágu verði á vörum sínum, meðan hlutfallið á verði afurða þeirra er 306 gagnvart útlendum vörum 235, þá geta þeir ekki vænst þess, að bætt verði úr raunum þeirra með gengis- eða verðlagsráðstöfunum einum saman. Þeir geta ekki vænst þess, að verðlag verði oftar þeim hagstæðara en það er nú, og það má fullkomlega gera ráð fyrir, að það verði eitthvað óhagstæðara framvegis. Ef bændur vilja láta bæta úr nú verandi kringumstæðum þeirra, verða þeir að leita lækningar á öðrum sviðum en þessu og með alt öðrum aðferðum. Meðal þeirra, sem undanfarið hafa, ef svo má segja, fleytt rjómann ofan af vegna gengishækkunarinnar, eru m. a. þeir framleiðendur, sem selt hafa afurðir sínar mestmegnis á innlendum markaði, og eru það aðallega bændur. Það er því fullkominn misskilningur, ef þeir kvarta undan afleiðingum gengishækkunarinnar. Hinu neita jeg ekki, enda er það öllum augljóst, að gengishækkunin hefir valdið ýmislegri röskun og tilfærslum á verðmætum milli borgara þjóðfjelagsins, og um þetta bera og skýrslur hagstofunnar ljósastan vott.

Um brtt. vil jeg aðeins segja það, að jeg hefi að ýmsu leyti samúð með þeim, sem vilja afnema tolla eða lækka þá. Að afnema vörutoll á kornvörum, sem er afarlágur, sýnist mjer ekki vera nauðsynlegt að sinni, og get heldur ekki fallist á, að það sje fremur nauðsynlegt vegna bænda en annara. Að öðru leyti eru ýmsir annmarkar á því að draga vörur alveg undan vörutolli; t. d. er mun erfiðara að fá skýrslur um innflutning á þeim vörum, sem ekki eru tollaðar. Þær koma bæði seint inn og auk þess er miklu erfiðara að fá þær. Lögreglustjórar þurfa ekki að hafa sama eftirlit með innflutningi á tollfrjálsum vörum og það tekur langan tíma áður en hagstofan hefir haft tíma til að ganga í gegnum allar þær farmskrár, sem til þess þarf. Afnám korntollsins er auk þess utan við grundvallarreglu þá, sem frv. er bygt á, og því mun jeg greiða atkvæði á móti brtt. En þrátt fyrir það stend jeg við það, sem jeg hefi sagt, að það er ekki æskileg, að þurfa að tolla þessháttar vörur. Aftur á móti mæli jeg eindregið á móti því að afnema alveg tollinn á steinolíu. (KlJ: Það er ekki meining okkar). Jæja, þá þarf jeg ekki að segja neitt um þetta, en jeg skildi svo háttv. 1. þm. N.-M, að hann vildi fella niður steinolíutollinn. Jeg vil mæla á móti, að það verði gert, vegna þess að þá, verður þar eftir auðveldara að flytja inn ýmsar aðrar skyldar vörur, sem ekki ættu að vera tollfrjálsar, þó að steinolía yrði það; því að lögreglustjórar missa aðstæður til að geta litið eftir þessu, ef steinolían verður tollfrjáls. En það eru t. d. bensín og ýmsar aðrar olíur, sem ekki getur talist rjett að undanþiggja ákvæðum vörutollslaganna.

Um brtt. 437, að lækka kolatollinn aðeins í kr. 1.50 í staðinn fyrir 1 kr. eins og nefndin leggur til, segi jeg það, að þetta er að vísu allgóð lækkun, að lækka hann um helming, en jeg hefi tilhneigingu til að líta á tolla með tilliti til verðs varanna, sem þeir eru lagðir á, og þannig sjeður sker kolatollurinn sig langt út úr öllum öðrum tollum og verður langhæstur af öllum vörutollum, nema ef til vill af ódýrustu leikföngum, móts við verðmæti vörunnar. Til þess að koma honum í samræmi við það, sem annars er um vörutollað tollurinn sje frá 2–5% af verði vörunnar, hingað kominnar, þá er það svo, að kolatollurinn hefir sína eðlilegu upphæð, þegar hann er orðinn 1 króna á tonnið. Jeg ætla því að vera með tillögu nefndarinnar óbreyttri.

Þá er loks brtt. frá hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ), sem er annars eðlis. Hún er um eina af þessum tilfærslum frá 7. flokki yfir í 2. flokk, sem altaf er verið að gera öðruhvoru. Þessi tilfærsla skiftir ríkissjóð litlu máli, svo að jeg skal ekkert hafa á móti henni. Verði hún hinsvegar samþykt, er þörf á að breyta henni aftur til þess að fá rjettari og nákvæmari heiti en hv. flm. (ÞorlJ) hefir valið. Bæði orðin eru svo óákveðin, að þau geta náð yfir fleira en hv. flm. ætlast til, samkvæmt ummælum sínum.