10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

1. mál, fjárlög 1927

0103Björn Líndal:

Jeg er hræddur um, að hv. 2. þm. Reykv. (JBald) hafi ekki skilið mig rjett í gær. Það er satt, að jeg hafði trú á, að hægt væri og vildi hlynna að því að afnema gengisviðauka af öllum nauðsynjavörum, og jeg gekk nauðugur til þess að halda honum við. En tímarnir breytast, og það, sem er óbærilegt í ár, getur orðið bærilegt að ári. Og þegar rætt er um að ljetta af þjóðinni sköttum, þá finst mjer, að fyrst beri að snúa sjer að því, sem þyngst hvílir á henni og er henni mest til hnekkis, og það getur verið annað á þessu ári en það var í fyrra. Það var þess vegna, að jeg var ekki með því að afnema gengisviðauka á kaffi og sykri, og að jeg áleit, að það væri mikilvægara að reyna að tryggja það, að sjávarútvegurinn færi ekki í kaldakol, svo að af hlytist alment atvinnuleysi og þá jafnframt skortur á daglegu brauði, heldur en það að gera þjóðinni kaffi- og sykurneyslu nokkru ódýrari. Jeg lít nú svo svörtum augum á framtíð útgerðarinnar í landinu, að jeg álít, að þar þurfi bráðrar aðgerðar við. Þessi atvinnuvegur stendur nú óvanalega höllum fæti, bæði vegna stórkostlegs verðfalls á framleiðsluvörunni og vegna gengishækkunar, og ennfremur vegna of mikils framleiðslukostnaðar. Þetta veit hv. 2. þm. Reykv. vel. Af þessum ástæðum álít jeg, að meiri ástæða sje til að ljetta af framleiðslunni einhverjum sköttum heldur en af þeim, sem búa nú við þann eld, sem aldrei hefir betur brunnið. Verkamenn hafa aldrei haft eins gott kaup og þeir hafa nú, og það væri ekki nema gott, ef atvinnuvegurinn gæti borið það. Ef hv. þm. efast um, að hagur útgerðarmanna sje svona slæmur, ætti hann að líta í vasa þeirra og sjá, hvernig þar er um að litast. Jeg vona, að jeg hafi nú skýrt það nægilega fyrir hv. þm., hvers vegna jeg var ekki með því að afnema með öllu gengisviðauka og verðtoll, sem sje vegna þess, að jeg áleit, að á öðru riði meira. Þá virtist hv. 2. þm. Reykv. hafa orðið var við missögn eða mótsögn í ræðu minni, þar sem jeg hefði hælt hæstv. stjórn, en þó sagt, að hún hefði samið óvarleg fjárlög. Jeg lít nú svo á, að sú stjórn væri vandfundin, sem ekkert mætti að finna, og að við höfum nú stjórn, sem óvanalega lítið megi að finna. Þá vil jeg og neita því ákveðið, að jeg hafi brugðist vonum kjósenda minna hvað snertir afnám á gengisviðauka og verðtolli, því að jeg veit, að meðal þeirra eru margir, sem hafa þann eina rjetta skilning á öllum tollmálum, að fyrst beri að ljetta af þar, sem tollarnir hvíla þyngst á og koma ranglátast niður.