30.04.1926
Neðri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1463 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)

99. mál, vörutollur

Frsm. (Björn Líndal):

Jeg verð að segja, að mjer sárnaði meira en að jeg undraðist, þegar jeg sá brtt. á þskj. 456, sjerstaklega vegna hv. 1. flm. Jeg hafði þá trú. að hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) þekti meira til útgerðar og fiskiveiða hjer á landi heldur en hv. 2. flm. (HStef). Við höfðum vitanlega talað um þetta í nefndinni, og jeg hjelt, að hv. þm. V.-Ísf. ætti að vera kunnug ástæðan, sem þá var færð fyrir því að leggja til, að þessi tollur sjerstaklega yrði með öllu afnuminn. Ástæðan er sú, að þessi vara ber margfalt þyngra útflutningsgjald en nokkur önnur íslensk vara; svo hóflauslega hátt, að óhætt er að segja, að það sje að minsta kosti 6% af framleiðslukostnaði. Það getur komið fyrir, að það verði meira að segja 20% af því verði, sem fæst fyrir hana.

Að búa við slíka löggjöf, það er erfitt. Sjerstaklega finst mjer það koma úr hörðustu átt, ef bændur á þingi ætla að fara að leggjast á móti þessari lækkun, þar sem þeir ættu að vita allra manna best, að þessi atvinnugrein hefir fórnað langmestu fyrir þeirra hagsmuni. Það var aldrei nógsamlega metið og viðurkent, hversu miklu síldarútvegurinn fórnaði fyrir kjöttollssamninginn. Mjer sárnar það, að á Alþingi skuli sitja menn, sem eru svo þröngsýnir, að þeir skilji ekki þá sjálfsögðu sanngirniskröfu, að hjer beri á rjetta ofurlitla hjálparhönd.

Það er vitanlega hægt að fara aðra leið, að koma með frv. um lækkun á útflutningsgjaldi. Við töldum þessa leið heppilegri og fyrirhafnarminni, því að alt kemur í sama stað niður, hvort lækkað er útflutningsjald á síld um tilsvarandi upphæð eða tunnutollurinn afnuminn. En þetta er handhægra að þessu sinni, af því að fyrir liggur frv. um breytingu á vörutollslögunum; en sjerstakt frv. hefði þurft að flytja um útflutningsgjald á síld.

Hv. þm. hjelt því fram, að minni þörf væri á þessu vegna þess að til stæði heppilegra skipulag á síldarsölu en áður. Það er mín skoðun, og jeg hygg allra manna, sem yfirleitt hafa við verslun fengist, að ekkert skipulag dugar, ef varan er ekki samkepnisfær hvað verðið snertir. Og það er það, sem hjer er um að ræða. Okkur framleiðsla er gerð svo dýr með þeim álögum, sem bæði ríkið og sveitar- og bæjarstjórnir leggja á hana, að hún er ekki samkepnisfær við þá síld, sem Norðmenn fiska hjer við land. Stundum eru jafnvel teknar sumstaðar alt að 3 kr. af hverri saltaðri tunnu til opinberra þarfa.

Jeg vona, að hv. deild skilji, hvað hjer er á ferð, að hjer er um mjög sanngjarna till. að ræða. Jeg beini sjerstaklega máli mínu til bænda í þessum sal og bið þá athuga vel og vandlega, hvað gert var á þinginu 1924 fyrir þá og þeirra hagsmuni.