10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (104)
1. mál, fjárlög 1927
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Það er ekki mikið, sem jeg þarf að taka fram. Hv. þm. N.-Ísf. rjeðist allóvægilega á fjvn. í gærkvöldi, og verð jeg að svara honum með nokkrum orðum. Hv. þm. virtist vera í mjög illu skapi, líklegast af óhagstæðri verslun í svipinn, og var sjerstaklega reiður yfir því, að fjvn. hefði ekki lesið brjef frá samgmn. til hennar. Það er að vísu satt, að það kom brjef, ekkert merkilegt þó, frá þessari hv. nefnd og hefir flækst innan um ca. 200 skjöl, sem lágu hjá nefndinni, og mun henni hafa sjest yfir það; enda ekki undarlegt, því að skil eða álit frá þessari nefnd hafa ætíð komið í ótíma og aldrei verið rædd í fjvn. á rjettum tíma. Hvað viðvíkur till. hv. samgmn. um báta- og vjelakaupastyrki, þá er það alls ekki venja að styrkja menn til að kaupa báta eða hluta í þá, heldur til þess að halda uppi ferðum, ef báturinn er til, og liggur þá í hlutarins eðli, að báturinn verður að vera ferðafær. Þessi hv. nefnd hefir hlutað þetta niður ósköp barnalega, og jeg vil ekki segja, að hún hafi gert sig hlægilega, en hún hefir að minsta kosti orðið þessari hv. deild til mikillar skemtunar.
Hv. þm. N.-Ísf. er að veitast að fjvn. fyrir störf hennar, en jeg vil benda honum á, að hv. samgmn. sat í 8 vikur yfir litlu máli, sem hægt hefði verið að afgreiða á einum fundi með sæmilega skynsömum mönnum. Þá verð jeg að gera hv. þm. nokkur skil fyrir því, að hann hjelt því fram, að fjvn. hefði verið hlutdræg í till. sínum um fjárveitingar. Jeg held, að það hafi því miður verið óheppilegt fyrir hv. þm. að minnast á þetta, því að jeg hygg, að þessi ásökun gæti illa snúist. gegn honum sjálfum. Hv. þm. sagði, að nefndarmenn fjvn. hefðu fengið 80 þús. kr. handa sínum kjördæmum. Þetta kann nú vel að vera og er ekkert undarlegt, þar sem í fjvn. eru sjö menn úr öllum landshlutum. Hitt væri undarlegra, ef samþ. hefðu verið 72 þús. kr. til Ísafjarðarsýslu einnar, en þó er það nú svo. Jeg hefi nú talið þetta saman, og jeg hygg, að það láti nærri, enda var það ekki að ástæðulausu, að þeir Ísfirðingarnir — og raunar háttv. þingmenn N.-M. líka — voru kallaðir stórkaupmenn við 2. umr. fjárlagafrv. Það er þess vegna hálfleiðinlegt fyrir hv. þm. að vera að tala um þetta. Stærstu liðirnir, sem samþyktir hafa verið til kjördæma fjárveitinganefndarmanna, voru teknir upp eftir till. stjórnarinnar og Búnaðarfjelagsins, t. d. til sandgræðslu o. fl.
Þá gat hv. þm. þess, að öll önnur hækkun á fjárlögunum frá hálfu nefndarinnar en sú, er gekk til nefndarmanna sjálfra, hefði ekki numið nema rúmum 13 þús. kr. Jeg hefi nú sýnt fram á, að Ísafjarðarsýsla og Ísafjörður hafa fengið meira en þessa upphæð. Auk þess má geta þess, að til brúagerða og símalagninga hafa farið 15 þús. eftir till. fjvn., auk alls annars. Þetta er því fáránlegra, sem þetta er nokkuð vanur þm., sem þannig gerir sig beran í slíkum fjarstæðum og skilnings]eysi. Og verður ekki nógsamlega vítt sú frammistaða.
Þá mintist hv. þm. á símann. Jeg skal nú ekki fara mikið út í það. Jeg vil aðeins benda á, að hann sagði, að það væri dýrara að byggja loftakeytastöðvar en leggja síma. Það vita nú allir, hvernig Vestfjarðahálendið er. Ef maður ber Heljardalsheiði saman við fjöllin á Vestfjörðum, þá er hún sakleysið sjálft, og veldur þó árlega stórtjóni. Annars skal jeg geta þess, að það má byggja 7 loftskeytastöðvar fyrir þetta fje, sem hann fer fram á. Hann sagði, að það hefðu komið fram kröfur um þetta í 4 ár á þingmálafundum, en hann ekki treyst sjer til að bera það fram fyr en nú, og er þó ári á undan tímanum, sem kröfurnar eru miðaðar við nú síðast. Jeg vil nú álíta, að þetta hafi verið fljótfærni af honum og ráðlegg honum að taka þetta aftur og setja það á hið rjetta ár, 1928. Jeg held, að jeg tefji svo ekki tímann með því að tala lengur við þennan hv. þm.; jeg þarf ekki að bera saman störf fjvn. og samgmn., hv. deild þekkir þau.
Þá vjek hæstv. fjrh. að mjer út af járnbrautinni. Hún er nú orðin helsta umræðuefnið hjer við fjárlögin. Hæstv. fjrh. var í góðu skapi hjer í deildinni í morgun fyrir þingfund og sagði okkur nokkrum þm. draum sinn. Hann dreymdi um járnbrautarmálið. Hann sá tvær brýr yfir á og flæðiengi bak við; önnur brúin var 20 hæðir, en hin lág og lítilfjörleg. Stærri brúin var náttúrlega járnbrautin. Þetta er líkingardraumur. Þarna hefir hann sjeð sína eigin loftkastala. Hann sjer þá líklega aldrei rætast nema í draumi, en það kann að vera honum næg ánægja. Þá sagði hann sögu af þm., sem hefði haft trú á áveitum. Svo hefði hann sjeð ritgerð um áveitur, sem hefði verið eftir lærðari mann, og þá hefði hann mist trúna. Þessi lærði maður hefði fundið út, að lítið köfnunarefni væri í jökulvatni. Ekki veit jeg, hvort jeg er þessi þm. Ef svo er, þá er sagan öll einn skáldskapur. Mjer hefir verið það ljóst, að jökulvatn er köfnunarefnislítið. Og það, sem jeg mintist á það í umr. um járnbrautina, var ekkert annað en skírskotun til skýrslu eftir aðra menn. En hitt get jeg vottað, að jeg hefi sjeð skýrslur og ritgerðir eftir „lærða“ menn, sem hefir sýnt sig síðar, að voru ólærðir menn, og kannast hæstv. fjrh. máske við það. Þá sagði hæstv. fjrh., að lítið væri að marka að bera járnbrautina hjer saman við járnbrautir erlendis, því að hvergi væru meiri flutningar en hjeðan og austur yfir fjallið!! Þetta getur vel verið, en það vantar bara enn betri skýrslu um það en við höfum fengið!
Þá mintist hv. þm. N.-Þ. (BSv) á það, að vegamálastjóri hefði gefið sjer brú í jólagjöf. Mjer skilst nú, að þessi gjöf hafi ekki verið gefin með samþykki hæstv. atvrh., og auk þess mun vegamálastjóri vera búinn að taka gjöfina aftur, svo að háttv. þm. getur tæplega átt von á henni lengur.