11.05.1926
Efri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1479 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

99. mál, vörutollur

Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):

Þetta frv. var flutt af fjhn. Nd. og samþykt í þeirri deild með miklum meiri hluta atkv. Eins og sjá má af frv., er tilgangur þess sá, að ljetta að dálitlu leyti aðalbyrðarnar á framleiðslunni, sem, eins og segir í greinargerð upphaflega frv., stendur höllum fæti sakir fallins verðlags og fjárkreppu. Það er einkum kolutollurinn, sem þörf er á að breyta, því að hann hefir með gengisviðaukanum verið mjög þungur skattur, eða kr. 3,75 á hvert tonn, síðan gengisviðaukinn bættist við. Það ætti að verða allmikill ljettir, ef frv. þetta verður samþ., þar sem þar er ætlast til, að kolatollurinn verði aðeins hr. 1,00 á hvert tonn. Hinar lækkanirnar eru ekki stórvægilegar, en þó svo, að þær ljetta dálítið á skattabyrðinni, einkum lækkunin á síldartunnutollinum. Tollur á þessum tunnum hefir verið mjög hár, þegar tekið er tillit til þess, að útflutningsgjald hefir verið tekið af vörunni aftur, þegar hún er flutt út. Tollurinn og útflutningsgjaldið til samans munu nema 7%. Þegar svo síldin fellur í verði, getur tollurinn orðið tiltölulega miklu hærri, og með núverandi verði er hann talinn hjer um bil 20% af nettó söluverði.

Undir meðferð málsins í hv. Nd. var kornvöru bætt við þær vörutegundir, sem vörutollur var feldur niður af. Sumir nefndarmanna munu hafa álitið fulllangt gengið með því að fella hann niður, en að því er þessa vörutegund snertir, er varla hægt að gera breytingar í ívilnunaráttina, nema því aðeins að fella tollinn burtu. Hefir meiri hluti nefndarinnar fallist á að leggja til, að frv. verði samþykt úbreytt, þar sent hagsbóta af því á sá hluti framleiðslunnar aðallega von, sem nú á örðugast uppdráttar. Það eru engin líkindi til þess, að kaupgjald lækki, og get jeg því ekki talið ósanngjarnt að ljetta að einhverju leyti á þessum tollum. Útflutningsgjaldið var hækkað í fyrra í alveg sjerstöku augnamiði, og væri því óviðkunnanlegt að lækka það nú aftur, þó að það að vísu hafi verið ein leiðin til að ná því takmarki, sem næst, ef frv. þetta verður samþykt.