10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

1. mál, fjárlög 1927

Jón Sigurðsson:

Jeg skal geta þess, sem sjálfsagt flesta getur rent grun í, að þótt fjvn. hafi skrifað undir nefndarálitið á sínum tíma fyrirvaralaust, þá var það þó engan veginn svo, að nefndarmenn væru alveg sammála um hvert atriði. Til dæmis má geta þess, að okkur íhaldsmönnum í nefndinni þótti of langt gengið um lækkun teknanna. Ennfremur töldum við, að ýmsir útgjaldaliðir, sem fjvn. tók upp, hefðu getað fallið niður að skaðlausu. En yfir höfuð var hjer þó um smærri upphæðir að ræða. Þótti mjer því ekki ástæða til að gera sjerstaklega grein fyrir afstöðu minni í hv. deild við 2. umr. öðruvísi en með atkv. mínu.

Nú stendur nokkuð öðruvísi á. Nú leggur fjvn. til, að aukin verði útgjöld ríkissjóðs á þessum parti fjárlaganna eitthvað unt 98 þús. En af þessari upphæð eru aðeins kringum 36–37 þús., sem öll nefndin stendur saman um, sem sje rúmur 1/3 af útgjaldaaukningunni, sem fjvn. leggur til. En upphæðin, sem að minsta kosti við hv. þm. Borgf. (PO) getum ekki greitt atkv. með, er samtals rúmar 60 þús.

Skal jeg þá ekki hafa þennan formála lengri, en snúa mjer að einstökum atriðum, sem ágreiningur hefir orðið um í nefndinni, og hefi því frekar ástæðu til þess, að hv. frsm. (TrÞ) láðist að geta a. m. k. um sum atriði, sem nefndin var klofin um.

Jeg ætla þá að byrja á 26. brtt., við 14. gr., um það, að heimilt sje að launa presti eða prestvígðum manni, til þess að fara um land alt til þess — eins og komist er að orði — að efla andlega samvinnu meðal presta og til kristilegra áhrifa á söfnuði úti um land.

Fyrsta spurningin er náttúrlega sú: Er þessa manns þörf? Það er nú svo, að það eru til fleiri leiðir að ná andlegu sambandi við menn, þar á meðal góðar bækur og rit. Jeg fyrir mitt leyti tel ekki nokkurn vafa á, að fyrir almenning úti um landið myndu úrvals prjedikanir vera miklu æskilegri og bera meiri árangur heldur en slík sendiför. Það má líka geta þess, að það getur verið engu að síður þörf að senda aðra farandmenn heldur en þennan póstprest eða farprest, eða hvað maður á annars að halla hann. Jeg get nefnt til dæmis farandlækna, farandlögfræðinga, farandkennara o. s. frv. Og það er líka ekkert sennilegra en að hinar stjettirnar komi líka á eftir, þær þurfi líka að ná sambandi við sína menn. Hvaða ástæða skyldi þá vera til þess að synja þeim um það sama? Hjer er enginn sparnaður á ferð, ekkert annað en nýtt embætti. Það er nú borið fyrir, að svo mörg prestsembætti sjeu nú óveitt, og þannig sparist fje, að ástæðulaust sje að synja þessari beiðni. En þó má geta þess, að þetta starf verður ekki að neinu leyti til þess að spara prestsþjónustu í landinu. Þau prestaköll, sem vantar prest, verða eftir sem áður að fela nágrannaprestinum að þjóna embættinu gegn hálfum launum. Það er því um engan sparnað að ræða. Mjer sýnist þess vegna, að þessi upphæð verði aðallega til þess að veita prestum og prestvígðum mönnum og guðfræðingum tækifæri til þess að lyfta sjer upp í sumarfríinu og ferðast um landið sjer til hressingar. Það yrði að því leyti nokkurskonar styrkur handa þeim til hressingar eftir kyrseturnar í Reykjavík. Árangurinn tel jeg ekki, að muni verða neitt meiri eða betri heldur en verður með ritum og útgáfu góðra bóka, eins og jeg áður mintist á.

Þá vil jeg snúa mjer að næsta ágreiningsefninu, en það er brtt. nefndarinnar um, að Birni Jakobssyni verði veittur styrkur til þess að reka íþróttaskóla í Þingeyjarsýslu. Það hefir verið lesinn hjer upp partur af umsókninni. Yfir höfuð var það heldur losaralegt, sem sagt var um fyrirkomulag þessa skóla. Nefndin sá sjer því ekki fært að taka þetta upp við 2. umr. En eftir að erindi Björns Jakobssonar kom eftir 2. umr., var þetta afráðið. Í raun og veru lít jeg svo á, að hjer sje ekki um skólastyrk að ræða, heldur nýtt starf, að það sje verið að losa mann úr gagnlegu embætti og flytja hann þangað, sem hann hefir mjög lítið að gera. Hjer verður því ekki um annað að ræða en nýtt landssjóðslaunað starf við Laugaskólann, sem ríkissjóður verður nú og framvegis að standa straum af, ef þetta verður samþykt. Það er t. d. ekki gert ráð fyrir neinu húsnæði handa íþróttaskólanum fyr en eftir 3–4 ár; ætlast til að hann noti Laugahúsið þennan tíma; en mjer virðist ástæðulaust að leggja mikið upp úr þessum húsbyggingarloforðum leikfimikennarans. Það getur svo margt breyst á skemri tíma en 4 árum.

En hvað sem öllu þessu líður, þá hefir mál þetta fleiri hliðar, og þær alvarlegar. Mjer finst ekki hægt að loka augunum fyrir því, að frá öðrum unglingaskólum víðsvegar í landinu hljóti að koma fram kröfur um samskonar fríðindi: að landið eða ríkissjóður borgi íþróttakensluna. Jeg sje ekki, hvernig hægt verður að neita þeim kröfum, ef þingið er komið út á þessa braut.

Og hver er þá þörfin fyrir þessa íþróttakenslu? Svarið er í skjölum þeim, sem lögð hafa verið fram til stuðnings málaleitun þessari, og er þar sagt, að íþróttakenslu þessa eigi upp að taka vegna sveitamenningarinnar — og frsm. undirstrikaði þetta sjerstaklega. Jeg skil ekki, að þörf sje að stofna íþróttaskóla til þess að kenna sveitamönnum skíðagöngu, fara á skautum eða að venja þá við kapphlaup, knattleiki eða annað þess háttar. Sveitirnar hafa hingað til komist af án slíkra skóla, og þó hafa menn lært þessar íþróttir og lagt stund á að iðka þær. Jeg býst ekki við, að frá þessum skóla útskrifist betri skíðamenn en verið hafa í Fljótum og eru þar enn, eða að þaðan komi slyngari skautamenn en þekkjast í Skagafirði og Eyjafirði, að ógleymdum Mývetningum, sem lengi hafa á orði verið hafðir fyrir skautahlaup sín, og eru þar að auki á næstu grösum við skólann. Jeg staðhæfi, að í þessum sveitum hafa menn orðið það leiknir í þessum íþróttum, að þeir munu ekki standa langt að baki erlendum mönnum.

En hvað leikfimikenslu snertir, þá er hún að sjálfsögðu góð og nauðsynleg öllum þeim, sem miklar kyrsetur hafa, en fyrir okkur sveitamennina, sem altaf erum úti við og á sífeldri hreyfingu, er síður þörf á henni.

Það hefir heldur enginn hörgull verið á íþróttakennurum, að því er jeg frekast veit. Fjöldi áhugasamra manna hafa lært hjá ágætum kennurum, en verkefnin eru ekki nóg og margir þeirra, sem lært hafa, fá ekkert starf. En á meðan við höfum nóg af sjálfboðaliðum, sem fást ættu til þess að hafa kensluna með höndum, ef skólarnir æskja þess, þá sje jeg ekki, hvers vegna ríkið á að taka slíkt að sjer.

Þessi maður er ágætur kennari og er mikið eftirsóttur, svo að sagt er, að nemendur hans hjer í Reykjavík skifti hundruðum, en það út af fyrir sig, að hann hefir svo mikið að gera, virðist benda til þess, að ríkið eigi ekki að kippa honum í burt frá starfi sínu; og þótt hann einhverra hluta vegna kjósi fremur ljettara starf, þarf ekki að taka það til greina á meðan hann er í fullu fjöri.

Í fám orðum sagt: hjer er um ný og óþörf útgjöld að ræða, verkefnið lítið, og þó ennþá minna fyrir nemendurna, auk þess sem nýjum kröfum mun rigna niður, sem erfitt verður að þagga niður, úr því fordæmið er komið.

Þá vík jeg að III. brtt. á þskj. 304, um byggingarstyrk til stúdentagarðsins. Það er meiri hluti fjvn., sem þar leggur til, að veittur sje 50 þús. kr. styrkur í þessu skyni, en jeg og hv. þm. Borgf. höfum ekki getað átt þar samleið með meiri hl. Eins og frv. er nú orðið, þá er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram byggingarstyrki til ýmsra stofnana, svo sem 100 þús. kr. til viðbótarbyggingar á Kleppi, 100 þús. kr. til landsspítalans, 125 þús. kr. til heilsuhælis Norðlendinga í Kristsnesi, auk smærri styrkja til sjúkraskýla o. fl., og þegar alt er talið, er byggingarstyrkur þessi kominn talsvert á 5. hundrað þús. kr., og sýnist það nægilegt fyrir ríkissjóð á einu ári og að við það megi una, þótt eigi sje hækkað frekar.

Það má líka benda á það, að enn er ekki búið að safna nægu fje. Eins og stendur mun Stúdentafjelagið ekki hafa til umráða nema 130–140 þús. kr., og vantar þá að minsta kosti 60 þús. kr. til þess að fullnægja þeim skilyrðum, sem sett hafa verið, svo það þarf tíma til að safna þeirri upphæð. En lægi nú brýn nauðsyn við að hrinda byggingunni áfram á þessu ári, þá má benda á það, að Stúdentafjelagið hefir þó þessi 130–140 þús. kr., og ætti sú upphæð að nægja til þess að byrja á byggingunni 1927, svo engin ástæða er til þess, að hún þurfi að tefjast, þó að brtt. meiri hl. fjvn. verði ekki samþykt að þessu sinni. Á hinn bóginn vil jeg geta þess, að alt virðist benda í þá átt, að 1928 fari að ljetta svo á ríkissjóði, að það komi þá betur við, að hann leggi fram þessa upphæð. En eins og horfir tel jeg ófært, að styrkur þessi verði greiddur á árinu 1927, enda virðist mjer, þegar þessar ástæður eru athugaðar, að þeir, sem halda slíku til streitu, geri það nánast eins og að leik, svo tekjuhalli fjárlaganna verði sem mestur.

Það eru raunar ýmsar fleiri brtt., sem ágreiningur hefir orðið um í nefndinni og sumar, sem jeg stend einn á móti, en þar er víðast hvar um smærri upphæðir að ræða, sem mjer þykir ekki taka að gera sjerstaklega grein fyrir, að læt mjer því nægja að sýna með atkvæði mínu, hver afstaða mín sje.

En áður en jeg sest niður, get jeg ekki stilt mig um að minnast lítilsháttar á ræðu hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ). Hann hjelt því meðal annars fram, til þess að rjettlæta hækkunartill. sínar og fleiri hv. þdm., að það gerði ekkert til, þó að útgjöld ríkissjóðs væru aukin. Jeg skal játa, að jeg varð talsvert hissa, þegar jeg heyrði þetta, enda datt mjer í hug gamla máltækið: „Öðruvísi mjer áður brá.“ Jeg man, að um það leyti, sem jeg kom á þing, var hann talinn einn af gætnustu mönnum þingsins, og var það lengi eftir. En mjer sýnist, eftir framkomu hans í fyrra og eftir tali hans nú, að þessu horfi alt öðruvísi við. Það er ekki eins oft „nei“ í lófanum nú eins og áður, þegar greidd voru atkv. um styrki til einstakra manna og bitlinga. Eins og hann var talinn fastur á landsfje áður, verður hann nú að teljast til þeirra manna, sem vilja bruðla með landsfje. Því undarlegra finst mjer þetta, sem það er venja, að eftir því sem aldur færist yfir menn, verði þeir gætnari og stilli betur í hóf kröfum sínum.

Í mínum augum er það nú svo, að ástandið framundan sje það alvarlegt, að full ástæða væri til, að hv. þdm. tækju höndum saman og reyndu alt, sem þeir gætu, til þess að takmarka sem mest útgjaldaaukningar sínar. Geri þeir það ekki og samþykki fjárlögin með jafnmiklum tekjuhalla eins og nú horfir, sje jeg ekki betur en að fjárhagsafkomu ríkissjóðs sje stýrt til vandræða. Í þessu sambandi vil jeg aðeins benda á það, að brtt. einstakra hv. þdm. við 2. og 3. umr. um hækkanir, sem ganga aðallega til utanferða, náms og listamanna, og fleiri þessháttar bitlingar, nema nú yfir 60 þús. kr., og er þetta fyrir utan það, sem stjórnin leggur til í frv., að veitt sje í þessu skyni.

Þetta sýnir ógegndina og bruðlunarsemina, og að við erum komnir miklu lengra nú á þessu sviði en góðu hófi gegnir. Og jafnvel er mjer nær að halda, að við sjeum í bruðlunarseminni að ganga feti lengra en þingið 1919, sem þó hefir jafnan verið við brugðið.