10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)
50. mál, almennur ellistyrkur
Frsm. (Jón Kjartansson):
Síðan þetta frv. var hjer á ferðinni í þessari hv. deild fyrir fáum dögum, hefir það gengið í gegnum efri deild. Þar voru gerðar á því smávægilegar breytingar, þannig, að frestur sá, sem í frv. upphaflega aðeins hafði verið ætlaður Reykjavíkurbæ einum, var gerður víðtækari, svo nú er ákveðið í frv., að þessi ákvæði gildi um alt landið. Allshn. sjer ekki neitt athugavert við þessar breytingar, sem hv. Ed. hefir gert á frv., og mælir því með því, að frv. verði nú samþykt í þessu formi, sem það er nú.