11.03.1926
Neðri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)

61. mál, kirkjugjöld í Prestbakkasókn í Hrútafirði

Flm. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg álít, að mál þetta liggi nægilega skýrt fyrir í greinargerð þeirri, sem fylgir frv., og í umsögn biskups. Mun öllum vera ljóst, að um fyllsta sanngirnismál er að ræða, og er það merkilegast, hve lengi hefir dregist að laga þetta misrjetti. Finst mjer óþarft að segja margt á þessu stigi málsins. Þykir mjer rjett, að það komi til nefndar. Getur það orkað tvímælis, til hvaða nefndar eigi að vísa því, allshn., fjhn. eða mentmn. En þar eð mál þetta er fyrst og fremst kirkjumál, þá vil jeg leggja til, að því verði vísað til mentmn.