22.03.1926
Efri deild: 34. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1587 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)

42. mál, innflutningsbann á dýrum o. fl

Ingvar Pálmason:

Jeg gat þess við 2. umr. þessa máls, að jeg myndi koma með brtt. við þessa umr. Jeg hafði upphaflega ætlað mjer að hafa brtt. víðtækari, en með því að mjer virtist deildin ekki vilja víðtækari breytingu, þá fjell jeg frá því. Um þessa litlu breytingu er óþarfi að fjölyrða. Hún fer fram á að flytja orð úr 1. gr. frv. yfir í 2. gr., og verður úr því nokkur meiningarmunur, eins og menn geta sjeð. Jeg fe ekki sjeð, að ástæða sje til þess að hafa algert innflutningsbann á fuglum. Mjer finst nægilegt að hafa heimild til þess, ef ástæða virðist til. Margir menn flytja inn suðræna fugla sjer til skemtunar, og finst mjer engin þörf á því að banna slíkt að ástæðulausu. Jeg vænti þess því, að hv. deild sjái sjer fært að samþykkja þessar brtt. mínar.