22.03.1926
Efri deild: 34. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1587 í B-deild Alþingistíðinda. (1217)
42. mál, innflutningsbann á dýrum o. fl
Frsm. (Eggert Pálsson):
Jeg bjóst nú við því, að brtt. háttv. 2. þm. S.-M. (IP) mundu verða víðtækari en raun er á orðin, enda kom það fram í ræðu hans, að hann hafði upphaflega hugsað sjer það svo. Um þessar brtt. vil jeg segja fyrir hönd nefndarinnar, að hún leggur ekki áherslu á, að deildin leggist á móti þeim, en mun sjálf vegna samræmis greiða atkvæði á móti þeim. Nefndin lítur svo á, að rjettara hefði verið að fylgja frv. óbreyttu, því að það er sniðið eftir samskonar lögum í nágrannalöndunum. En sem sagt, nefndin leggur ekki mikla áherslu á þetta atriði.