08.04.1926
Neðri deild: 48. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)
33. mál, húsaleiga í Reykjavík
Frsm. meiri hl. (Jón Kjartansson):
Meiri hl. allshn. ber fram smábrtt. við frv., þess efnis, að ekki megi hækka leigu á íbúðum til þess tíma, er uppsagnarfresturinn er á enda, þ. e. til 14. maí 1927. Það má að vísu segja, að brtt. sje óþörf, þar eð með því að ekki sje hægt að segja upp íbúðum til burtflutnings fyr en 14. maí 1927, megi heldur ekki breyta leigumála fyrir þann tíma; en þetta getur þó orkað tvímælis, og ef slík vafaatriði koma upp verða þau auðvitað dómstólamál, og til þess að koma í veg fyrir að til þess komi, og til þess að taka af allan vafa í þessu efni, er brtt. borin fram. Jeg vænti þess vegna, að hv. deild geti fallist á þessa brtt. nefndarinnar.
Jen sje, að hv. þm. Mýr. (PÞ) hefir borið fram brtt. um, að lögin frá 1921 skuli enn halda áfram að vera í gildi, þótt lögin frá 1917 og 1919 sjeu úr gildi feld. Meiri hl. allshn. hefir að vísu ekki haft tíma í þetta sinn til að athuga brtt. þessa, en jeg geri þó ráð fyrir, að hann sje henni mótfallinn. Nefndin hefir áður rætt þennan möguleika og ekki fundið ástæðu til að taka hann til greina. Það er vitanlegt, að bæjarstjórnin í Reykjavík hefir haft 5 ár til þess að notfæra sjer þessi heimildarlög, en þó hafa þau engan árangur borið ennþá. Að vísu fjekst meiri hluti í bæjarstjórninni árið 1924 fyrir því, að reglugerð yrði gefin út samkv. þessum lögum, en stjórnarráðið neyddist til að synja þeirri reglugerð staðfestingar, þegar til kom, vegna þess að bæjarstjórnin hafði þar farið út fyrir þau takmörk, sem lögin settu henni. Jeg býst heldur ekki við, að bæjarstjórnin vilji halda lengur í þessi lög; að vísu bað hún ekki um, að þau yrðu afnumin, enda var það ekki á valdi stjórnarinnar að láta gera það með konungsúrskurði. Jeg geri ráð fyrir, að bæjarstjórn Reykjavíkur sje orðin vonlaus um að ráða þessu máli til lykta af sjálfsdáðum, og því væri það illa gert og ekki rjettlátt að láta þessi lög halda áfram að vera í gildi. Þess vegna vænti jeg þess af hv. deild, að hún felli þessa brtt. hv. þm. Mýr., og jeg hygg, að jeg megi segja fyrir hönd meiri hl. allshn., að hann greiði atkvæði móti þessari brtt.