08.04.1926
Neðri deild: 48. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1652 í B-deild Alþingistíðinda. (1271)

33. mál, húsaleiga í Reykjavík

Pjetur Þórðarson:

Jeg ætla aðeins að gera stutta athugasemd út af ræðu hæstv. fjrh. Hans yfirlýsing um, að hættulegt geti verið að kasta valdi í þessu máli frá þinginu og yfir á bæjarstjórnina kemur mjer undarlega fyrir eyru, ef jeg mætti svo segja. Jeg gekk út frá því sem sjálfsögðum hlut, að bæjarstjórnin væri skipuð úrvalsmönnum þessa bæjar, og mjer dettur strax í hug, þegar því er haldið fram, að Reykjavíkurbær eigi tilkall til fleiri manna inn á þing en nú er, að ekki sje álitlegt til þess að hugsa. Að öðru leyti skal jeg játa, og það þóttist jeg hafa tekið fram, að jeg vil heldur, að frv. verði felt með minni brtt. en þó hún ein yrði samþykt. Þar er jeg sammála hæstv. fjrh., en mínar ástæður eru alt aðrar en ástæður hans.

Meira hefi jeg ekki um þetta mál að segja. jeg bygði tillöguna á þeirri ætlun minni, að bæjarstjórn Reykjavíkur væri svo göfug stofnun, að henni væri fyrst og fremst óhætt að treysta um öll vandamál bæjarins.