14.04.1926
Efri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1667 í B-deild Alþingistíðinda. (1298)
93. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Atvinnumálaráðherra (MG):
Þetta frv. var flutt í háttv. Nd. af allshn. eftir beiðni minni. Ástæðan er sú að skipulagsnefndin hefir kvartað yfir því, að stundum fer svo á tímabilinu frá því að beðið er um mælingu á kauptúni eða kaupstað og þangað til endanlegum skipulagsuppdrætti er lokið, að ráðist hefir verið í ýmsar framkvæmdir, sem raska því skipulagi, sem nefndin hefir hugsað sjer. Með þessu getur farið svo, að verk nefndarinnar verði alveg ónýt, og þar sem það er verk, er að miklu leyti er greitt úr ríkissjóði, sýnist ekki vera nema eðlilegt, að gerðar sjeu ráðstafanir til, að ekki sje hægt á þessum tíma að gera þær ráðstafanir, sem fara í bága við það skipulag, sem nefndin hefir hugsað sjer.
Jeg býst við, að það þyki ástæða til, að þetta mál fari til nefndar í þessari hv. deild, og þar sem það var í allshn. í Nd., vil jeg óska þess, að því sje vísað til sömu nefndar hjer.