25.03.1926
Neðri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (13)

1. mál, fjárlög 1927

Tryggvi Þórhallsson:

Það er langt frá því, að jeg vilji um þetta veifa nokkru vopni, enda var það á móti vilja mínum og hrein tilviljun, að þetta atriði hefir svo dregist inn í umræðurnar, sem hæstv. ráðh. (JM) mintist síðast á. Annars vil jeg benda hæstv. forsrh. á það, að út frá því, sem um var talað, hvaða tillit bæri að taka til ádeilu og ummæla Sigurðar Þórðarsonar, þá álít jeg, að greina ætti á milli þess, sem hann skrifar um dómsmál, og þess, sem hann skrifar um utanríkismál. Jeg álít, að mikið tillit beri að taka til hans, þegar hann talar um dómsmál, þar sem hann er kunnugur þeim.

Þá kom hæstv. forsrh. (JM) að smyglunarmálinu. Sagði hann, að lögreglustjóri hefði ekki nefnt áfrýjun við sig. Satt er það og ekki óeðlilegt, þar sem hæstv. ráðherra var ekki í bænum. En það afsakar hann ekki neitt, og þess vegna beindi jeg þessu að honum. Jeg geri ráð fyrir, að hæstv. forsrh. viti, að mikil mistök voru á meðferð þessa máls.

Hæstv. atvrh. (MG) talaði langt mál og las upp skrifað mál viðvíkjandi bjargráðasjóðnum. Get jeg verið honum í raun og veru þakklátur fyrir það. Hann sagði, að jeg hefði ráðið yfir sjóðnum, að jeg hefði haft stjórn sjóðsins í vasanum. Síðan kom hann með þá ásökun til mín, að jeg, sem vildi hjálpa bændum, vildi ekki veita lán úr sjóðnum lengur en til 7 ára, þar sem hann aftur á móti vildi veita þau til 20 ára.

Hæstv. ráðherra (MG) veit nú vel, hve afarströng fyrirmæli gilda um útlán úr sjóði þessum, að það er aðeins mjög takmörkuð upphæð, sem kemur á hverja sýslu. Og stjórn sjóðsins er skuldug til að binda ekki fje sjóðsins svo mjög á fáum stöðum, að ekki verði þess vegna hægt að rækja hinar almennu þarfir þjóðarinnar. Þess vegna ætti, það að vera sjálfsagt „princip“ að veita engin lán úr sjóðnum lengur en til 7 ára. Enda er lánum þessum svo varið, að þau má veita til tiltölulega skamms tíma, eins og t. d. lán til bústofnskaupa, sem koma strax til með að svara vöxtum. En að veita stórlán til 20 ára útilokar alla aðra hreppa, sem lán þurfa að fá, um langan tíma. En við höfum ekki ótakmarkað fje til að sinna öllum, og því hljóta þessar ásakanir um bændaóvild að falla um sjálfar sig. Annars get jeg vel staðið fyrir þeim einn, þótt þær annars skelli á öllum þeim mönnum, sem hafa haft meðgerð með fje sjóðsins.

Jeg efa ekki það, sem hæstv. ráðh. (MT) sagði, að hann hefði fengjð annað brjef, þar sem upplýst er að í Holtshreppi sjeu 24 börn sjódruknaðra manna. (Atvrh. MG: Brjefið, sem jeg nefndi fyr, lá fyrir stjórn bjargráðasjóðs). Það lá ekki fyrir okkur. Og svo las hann upp úr brjefinu kafla, til að sýna að vandræði hreppsins stöfuðu af óheppilegum jarðakaupum, vanskilum oddvitans og skuldum kaupfjelagsins.

Jeg vil nú segja það, að fyrst hæstv. ráðh. (MG) fjekk þessar upplýsingar, átti hann að kalla saman stjórn sjóðsins, og þótt hann vildi ekki sýna mjer þá virðingu, heldur ganga fram hjá mjer, þá átti hann ekki að gera það gagnvart henni allri, heldur bera undir hana þessar upp1ýsingar, sem vitanlega hefðu haft áhrif á úrskurð lánsins.

Þá kom hæstv. atvrh. inn á gengismálið. Jeg er því sammála, sem hann sagði þar. En eitt fanst mjer mjög eftirtektarvert, sem hann sagði, nefnilega það að ef ekki væri hægt að hækka krónuna, þegar verð á útfluttum landbúnaðarafurðum er 50% hærra en áður, þá sje það aldrei hægt. Þetta vil jeg undirstrika, að þegar eitthvað „extraordinært“ er til staðar, þá sje hægt að hækka gengið, en þegar ekkert slíkt komi fyrir, þá sje það ekki hægt.