10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (130)
1. mál, fjárlög 1927
Benedikt Sveinsson:
Jeg hefi flutt brtt. á þskj. 297, ásamt þremur öðrum háttv. þdm., um að styrkur til að reisa barnaskólahús hækki úr 10 þús. kr. upp í 37 þús. kr., með þeirri athugasemd, sem þar segir, að „af upphæð þessari gangi 29 þús. kr. til byggingar barnaskólum í Neshreppi, Súðavík og Öxarfirði, þó eigi yfir 1/3 kostnaðar.“ Er þetta eftir þeirri venju, sem áður hefir tíðkast um styrkveitingar í þessu efni. Nú hefir verið flutt frv., sem meðal annars skipar fyrir um, hvernig fara skuli um byggingarkostnað skólahúsa, og þótt skoðanir sjeu allmikið skiftar um það, hvort styrkur í þessu efni skuli standa í fjárlögum eða í öðrum lögum, þá virðist mjer, sem varla sje hægt að gera ráð fyrir minni styrk á ári en þurfa mundi til þess að reisa þrjú skólahús. Virðist mjer því gegna furðu, að hv. fjvn. skuli leggjast á móti brtt. okkar.
Mjer hefir nýlega borist brjef norðan úr Öxarfirði, þar sem færð eru rök fyrir nauðsyn hreppsins að koma sjer upp skólahúsi. Að vísu er þar gamalt skólahús, en svo ófullnægjandi, að það verður ekki notað, og enginn kennari fæst til þess að halda uppi farskóla. Hinsvegar er mikill áhugi fyrir því manna á milli í sveitinni að reisa nýtt skólahús, og í því skyni hefir tekist að safna allálitlegri fjárhæð, sem verja til byggingarinnar.
Þetta hefir verið borið undir fræðslumálastjóra, sem er eindregið fylgjandi því, að byggingunni verði hrundið á leið, enda telur hann allan undirbúning hjeraðsbúa á þeim stoðum reistan, sem þörf er á og framast verður krafist í þessu efni. Vænti jeg því, að hv. þdm. sjái sjer fært að samþykkja brtt., enda getur ekki verið um annað að ræða en að styrkurinn hlýtur að koma á næsta ári, og því ekki ástæða til þess nú að leggjast á móti svo litlu fjárframlagi.
Þá hefi jeg stutt aðra brtt. á sama þskj., þá LXIV. í röðinni. Er þar um nýjan lið að ræða, um styrk til þess að stofna og reka Íslendingaheimili í Kaupmannahöfn, og fjárhæðin bundin við nafn frú Hlínar Johnson, sem hefir sent Alþingi rækilegt erindi um þetta efni.
Það hafa heyrst margar raddir um það hin síðari ár, að nauðsyn bæri til, að Íslendingaheimili kæmist upp í Kaupmannahöfn. Þessi kona, sem bæði er kunnug og vel metin í Höfn — auk þess sem hún er ötul og kjarkmikil — hefir nú tekið hugmyndina að sjer, en skortir fje til að hrinda henni svo á leið, sem nauðsyn ber til. Er því brtt. þessi fram borin til þess að ljetta undir með konunni að koma heimilinu á stofn, og svo stilt í hóf, að ekki er farið fram á nema aðeins 5 þús. kr. styrk úr ríkissjóði.
Því mun enginn neita, að gott og hagkvæmt mundi Íslendingum þeim, sem í förum eru, að eitthvert heimili væri í Kaupmannahöfn, er þeir gætu leitað athvarfs, í stað þess að hrekjast milli dýrra og misjafnra gistihúsa. Einkum væri það þó mikið athvarf ókunnugum mönnum, þeim er fyrsta sinni fara utan og oft eru nokkuð slakir í erlendu máli, að hafa sjerstakan stað í framandi landi, þar sem þeim er heimil vist og annar beini og þeim veittar allar leiðbeiningar, er þeir þurfa.
Kunnugt er öllum, að kvenfjelögin hjer í Reykjavík hafa hafist handa um að koma hjer á fót heimili, sem leiðbeina á konum þeim utan af landi, er hingað sækja og dveljast um skamma stund. Hefir í því skyni verið safnað allmiklu fje og hlutafjelag stofnað, sem ætlar að reka þetta fyrirtæki. Og sjálf ríkisstjórnin er þessu máli svo hlynt, að hún hefir fallist á að gefa lóðarspildu undir kvennaheimilið. En ef þetta er nauðsynlegt fyrir konur þær sem hingað sækja til stuttrar dvalar utan úr bygðum lands vors, — sem jeg tel litlum efa bundið, — þá ætti ekki síður að vera þörf á því fyrir þá Íslendinga, sem leita til annara landa, að eiga þar vísan samastað á meðan þeir dveljast þar, eða á meðan þeir eru að koma sjer fyrir annarsstaðar.
Eins og jeg drap á í upphafi, er kona sú, sem fjárveitingin er bundin við, dugleg og kjarkmikil, enda hefir hún sýnt það í mörgu. Hún er líka kunnug úti í löndum, hefir dvalið í Vesturheimi árum saman, og víðar hefir hún farið og ferðast erlendis, og mun því vel fallin til þess að stjórna slíku heimili.
Hjer hefir risið upp nokkur deila um alþýðuskóla Þingeyinga. Skal jeg þó ekki hlutdeila það mál að sinni, enda eigast þar við tveir hv. þm., sem kunnugri eru þessum málum norður þar heldur en jeg nú orðið. Hinsvegar vildi jeg leggja liðsyrði fjárveitingu þeirri, sem ætluð er Birni Jakobssyni til þess að halda uppi íþróttaskóla norður á Laugum. Ætla jeg, að það mundi gróði æskumönnum norður þar, og raunar öllum þeim, er íþróttir vilja stunda, að geta notið kenslu þessa manns, þótt jeg hinsvegar viðurkenni, að íþróttum Reykvíkinga sje skaði gerður, ef hann hverfur norður. En það er mest um vert, að hann vill sjálfur leita í átthaga sína og kenna þar nyrðra; hann er viðurkendur ágætiskennari og mundi hvar sem er geta sjer besta orðstír. Vil jeg því mæla sem fastast með því, að brtt. þessi verði samþykt.