10.04.1926
Efri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (1401)

78. mál, notkun bifreiða

Atvinnumálaráðherra (MG):

Þetta mál var flutt af hv. samgmn. Nd. eftir minni beiðni og gengur aðallega út á það að skerpa ákvæðin, sem lúta að því, ef bifreiðarstjóri stjórnar bifreið ölvaður. Það sýnir sig bæði hjer og annarsstaðar, hve þetta er stórhættulegt, svo að það verður af fremsta megni að reyna að stemma stigu fyrir því. Og þeir, sem láta slíkt koma fyrir oftar en einu sinni, mega alls ekki fá að stjórna bifreið.

Annað ákvæði þessa frv. er að færa lítið upp þann hraða, sem leyfilegur sje innan bæjar og á sumum öðrum vegum Þessi hraði var í byrjun settur svo lítill, að ómögulegt var að binda sig við það í framkvæmdinni. Enda er það öllum vitanlegt, að þessum hraða er ekki haldin t. d. hjer í bæ. En það er ástæðulaust og rangt að hafa slík ákvæði, sem menn vita að hljóta að verða brotin.

Í hv. Nd. var bætt við ákvæði um það, að hver bifreiðareigandi skuli tryggja sínar bifreiðar gegn slysum. Þessi ákvæði koma fyrst til greina, þegar búið er að útvega tryggingarfjelag, sem þykir fært að taka að sjer tryggingarnar. Hefi jeg alls ekki heyrt, síðan þessi ákvæði komu fram, neina kvörtun frá bifreiðarstjórum, að þeim þættu þetta of miklar kvaðir. Eftir því sem upplýst er, mun þetta iðgjald, sem bifreiðaeigendur greiða erlendis, nema 50–70 kr. árlega fyrir bifreið. Þar sem þetta er talsverð trygging fyrir þá, sem verða fyrir slysum af bifreiðum, þá sýnist mjer rjett að taka slíkt ákvæði upp. Samskonar ákvæði mun vera í nágrannalöndunum.

Jeg leyfi mjer að óska, að málinu verði vísað til samgmn. að þessari umr. lokinni.