29.04.1926
Efri deild: 62. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1708 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)

78. mál, notkun bifreiða

Atvinnumálaráðherra (MG):

Þó að nefndin leggi til, að gerðar verði allmiklar breytingar á frv., sje jeg ekki ástæðu til að andæfa þeim. Aðalbreytingin er um tryggingarákvæðin. Jeg hafði skilið umr. svo í hv. Nd., að þau ákvæði kæmu ekki til framkvæmdar fyr en lægri iðgjöld fengjust en bæði vegamálastjóri og nefndin virðast ganga út frá.

Jeg skaut því fram í hv. Nd., að umsögn bifreiðafjelaganna hjer í Reykjavík vantaði um þetta atriði. En hafi þau ekkert látið til sín heyra, virðist mjer, að skilja megi það á þá leið, að þau telji ekki, að frv. gangi of nærri sjer. En það má vera, þó að jeg viti það ekki, að fjelögin hafi nú snúið sjer til nefndarinnar.