07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1730 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)
26. mál, ritsíma og talsímakerfi
Atvinnumálaráðherra (MG):
Mjer skildist á hv. frsm. (K1J), að hann legði þá meiningu í orð mín, að ekki ætti að leggja neinar nýjar símalínur fyr en þessum tveim stóru línum væri lokið. Það var auðvitað ekki meiningin. Heldur hitt, að meðan þær væru ólagðar gæti tæplega verið að ræða um miklar aðrar framkvæmdir í þessu efni, en það fer auðvitað eftir því, hvað þingið sjer sjer fært að veita mikið til símalagninga. Jeg skal geta þess, að í sumar verða lagðir talsvert margir smáspottar. Næst verður svo tekin þessi stóra lína í Barðastrandarsýslu sumarið 1927.
Út af því, sem hv. frsm. (KlJ) skaut til mín, hvort það væri rjett að endurskoða ritsímalögin, þá er jeg í dálitlum efa um það. Jeg held sem sje, að það verði besta endurskoðunin, að þm. komi með till. sínar og landssímastjóri segi svo álit sitt um þær. Jeg er hræddur um, að ef sýslunefndir og sveitarstjórnir væru spurðar ráða um þetta, þá mundi koma nokkuð mikið af beiðnum.