07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1731 í B-deild Alþingistíðinda. (1426)

26. mál, ritsíma og talsímakerfi

Halldór Stefánsson:

Út af því, sem hv. frsm. (KlJ) sagðist hafa heyrt, að búið sje að ráðstafa línunni frá Egilsstöðum, skal jeg segja það, sem við þm. N.-M. vitum um það. Þegar samningar stóðu yfir milli stjórnarinnar og hjeraðsbúa, gerðu Fellamenn það að skilyrði fyrir því, að þeir yrðu með, að þeir fengju línustúf um leið. En jeg veit ekki til, að hægt hafi verið að verða við þessum óskum þeirra. Við höfum talað við hæstv. landsstjórn og ekki fengið góð svör um þetta. Það er þess vegna ekki líklegt, að hægt sje að gera Fellamönnum þessa úrlausn, til þess að fá þá í samtökin. Annað veit jeg ekki um þetta mál.