07.04.1926
Neðri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)
26. mál, ritsíma og talsímakerfi
Frsm. (Klemens Jónsson):
Jeg skal ekki þreyta hv. deild á langri ræðu. Hv. þm. Barð. (HK) sagði, að jeg hefði rokkað frá því, sem samþykt hefði verið á fundi samgmn. Jeg veit ekki, hvort hv. þm. (HK) hefir komið á fund nefndarinnar í morgun; hann var þar ekki þegar jeg kom, og þá var búið að bóka það, sem þar gerðist, og hygg jeg, að hann geti ekki sagt, að jeg hafi rokkað frá því. Landssímastjóri hefir nú gefið nýjar upplýsingar um ýms atriði, og gerir það nokkurn mun. Það er að nokkru leyti rjett hjá hv. þm., að nefndin hefir óbundnar hendur. Mjer virtist hv. þm. Barð. vera því meðmæltur, að lögin yrðu tekin til athugunar og endurskoðunar í heild, en hæstv. atvrh. óttast, að þá mundu koma fram of margar beiðnir. Þetta getur verið, en jeg vildi þó mælast til þess, að hæstv. stjórn skrifaði þetta bak við eyrað og athugaði, hvort það væri ekki rjett. Mjer er ekki kunnugt um, hvernig ástatt er með línuna frá Egilsstöðum að Birnufelli; jeg hefi ekki átt tal við landssímastjóra sjálfan um þetta, en var sagt af öðrum, að þeirri línu mundi þegar vera ráðstafað. Annars hefir ekkert skriflegt legið fyrir samgmn. um þetta og hún ekki haft tækifæri til að kynna sjer málið, og vildi jeg því mælast til þess, að hv. flm. taki brtt. aftur til 3. umr.