15.04.1926
Neðri deild: 54. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1738 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)
26. mál, ritsíma og talsímakerfi
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg þarf aðeins að segja örfá orð, til þess að gera grein fyrir brtt. minni á þskj. 311, þar sem farið er fram á, að bætt sje við nýrri línu frá Sandnesi að Drangsnesi. Jeg þakka hjer með hv. samgmn. fyrir að hafa fallist á hana, og jeg þarf engu að bæta við það, sem hv. frsm. (KlJ) hefir sagt, en jeg geng út frá, að hið sama verði látið ganga efir þessa línu og aðrar, sem landssímastjóri hefir mælt með. Þarna er um stutta leið að ræða, en mjög er bagalegt að hafa ekki síma í Drangsnesi, því að þar er um allstórt útvegspláss að ræða, sem er í allmiklum uppgangi, enda hefir legið fyrir erindi frá 24 útgerðarmönnum um fjárveitingu í þessu skyni, og eru þar leidd rök að því, hversu nauðsynlegur sími sje á þessum stað. Jeg bar þetta fram í fjvn., en þar sem hún gat ekki fallist á það, taldi jeg vonlítið að koma fram með sjerstaka tillögu um það utan nefndarinnar. Auk þessara áskorana hafa oftar en einu sinni verið samþyktar áskoranir um þetta efni á þingmálafundum. Skal jeg svo ekki orðlengja þetta frekar, en vænti hins besta af hv. deild.