03.05.1926
Efri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (1461)

102. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Forsætisráðherra (JM):

Háttv. þdm. munu hafa veitt því eftirtekt, að frv. er flutt af sjútvn. beggja deilda í samráði við stjórnina.

Jeg held, að till. sje mjög hyggileg. Eins og lögin eru nú, er ekki gott að gera neinn greinarmun á þeim brotum, sem í raun og veru eru alveg afsakanleg, og hinum, sem óafsakanleg eru. Hjer er bætt úr því, sem ekki var gætt, þá er lögin voru samin, að undanskilja hin „teknisku“ brot, ef svo mætti kalla, þar sem það kemur ljóst fram, að tilgangurinn hefir ekki verið sá, að fiska í landhelgi.

Jeg þarf svo ekki að segja meira. Það gleður mig, að fullkomið samkomulag er um breytinguna, og jeg vona, að frv. gangi fljótt í gegnum þessa l . deild.