10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

1. mál, fjárlög 1927

Atvinnumálaráðherra (MG):

Mjer þykir leiðinlegt, að hv. 2. þm. Reykv. (JBald) skuli ekki geta skilið, að þegar heimilt er að selja móttökutæki í einu lagi og taka stofngjald af, þá er einnig heimilt að taka slíkt gjald þegar tækið er selt í mörgum pörtum. Með þessu er mönnum gert hægra fyrir, því að stofngjaldið fyrir alla partana er lægra en fyrir heilt og samansett móttökutæki. Hins vegar geta allir, sem vilja, trúað afsökunum hans um aðfinslur á framkvæmd þessa máls, en jeg segi: sá, sem afsakar sig, hann ásakar sig.