10.04.1926
Efri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)

92. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Björn Kristjánsson:

Rjett í þessu barst fjhn. brjef frá stjórn Elliheimilisins í Reykjavík, þar sem hún fer fram á, að Elliheimilið verði undanþegið húsa- og lóðaskatti, eins og t. d. spítalar, kirkjur, alþingishúsið o. fl. Þetta brjef kom svo seint, að jeg hafði ekki tíma til að kalla nefndina saman til að ræða um þetta; en jeg hefi talað við tvo nefndarmenn hjer við hlið mjer, og eru þeir samþykkir því, að þetta verði gert. Það liggur í hlutarins eðli, að það er sjálfsagt, að heimili þetta, sem lifir á gjöfum einstakra manna og er líknarstofnun í fyllsta máta, njóti sömu rjettinda og áður greindar stofnanir.

Þar sem ekki var tími til að gera prentaða brtt. um þetta, leyfi jeg mjer að koma með skriflega brtt. Vænti jeg, að hv. þm. samþykki hana í einn hljóði.