28.04.1926
Neðri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
29. mál, almannafriður á helgidögum
Forsætisráðherra (JM):
Það hefir verið sagt hjer, að lögin um helgidagahald væru ekki vel haldin og þeirra ekki vel gætt af lögreglustjórum landsins. Jeg þekki nú ekki vel til annarsstaðar en hjer í Reykjavík. En það man jeg, bæði meðan jeg var bæjarfógeti og eins áður, að þá var mikið reynt til þess að gæta þessara laga, og jeg hygg, að þau hafi ekki verið mikið brotin. Þess verður að gæta, að þau lög, sem nú gilda, eru mjög rúm, svo margar af þeim athöfnum, sem menn vilja að ekki fari fram, eru leyfðar, ef lögreglustjóri samþykkir og nauðsyn krefur. Þetta er náttúrlega mjög rúmt. Jeg tala hjer ekki um affermingu skipa, því slíkt var beinlínis leyft. Jeg held, að þær ásakanir, að ekkert eftirlit sje með þessari löggjöf, sjeu ýktar — a. m. k. er það víst hvað snertir Reykjavík. En ef það kemur í ljós, að laganna sje ekki gætt sem skyldi þá má senda út skipun um að gæta þeirra betur framvegis. En það, að lögin koma ekki að miklu meira gagni, er af því, að þau ná of skamt. Þó það sje sagt, að atvinnulífi okkar sje þannig háttað, að víða verði að vinna ýms verk á helgum dögum, þá er jeg ekki viss um, að það sje alveg rjett. Það mun haga nokkuð líkt til um þetta hjá okkur og öðrum þjóðum í nágrannalöndunum, svo sem á Norðurlöndum. En þar er vinnufriður á helgidögum meiri en hjá okkur, enda löggjöfin strangari. Og jeg held, að það mundi sýna sig, að ef lögin væru strangari, þá yrði þeim betur framfylgt. Jeg tala hjer ekki um bann á að þurka fisk og hey og slíkt, sem vitanlega er oft alveg óhjákvæmilegt Sama er um afferming skipa. En ef markaðir eru haldnir á helgidegi, þá er slíkt alveg ófært. En um hreppsnefndarfundi og aðra fundi, þá má ekki halda þá á helgidegi nema það sje nauðsynlegt. En það mun mega oft segja, að svo sje. Á síðari tímum hefir það tíðkast stundum að hefja fundi dálitlu fyrir nón á slíkum dögum. En jeg veit, að það hefir komið fyrir, þegar átt hefir að byrja fund fyr, þá hefir það verið bannað af lögreglustjóra. Jeg held nú, að úr því hafi verið of mikið gert, að lögunum sje ekki fylgt. En eins og jeg sagði áðan, þá leyfa þau miklar undantekningar, svo að margt, sem sýnist vera óleyfilegt, er í raun og veru leyfilegt. En mjer finst frv. ganga of skamt, og frá mínu sjónarmiði væri alls ekki neitt á móti því, að það væri nokkru skarpara en eldri lögin. Lögin frá 1901 drógu úr þeim að óþörfu, að því er mjer finst.