17.04.1926
Neðri deild: 56. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1827 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)

96. mál, sérleyfi til virkjunar Dynjandisár

Sveinn Ólafsson:

Jeg bjóst sannast að segja ekki við, að þetta mál yrði borið hjer fram á þann hátt, sem nú er raun á orðin. Jeg bjóst ekki við, að lagt yrði fram frv. til heimildarlaga fyrir stjórnina að veita slíkt sjerleyfi, heldur að sjerleyfið sjálft yrði lagt hjer fram fyrir Alþingi til samþyktar eða synjunar. Jeg hefi einmitt skilið svo 7. og 36. gr. sjerleyfislaganna, að í þeim lægi þetta. Jeg get að vísu fallist á það, að með slíkum heimildarlögum sem þessum sje hægt að búa um sjerleyfi, sje hægt að afhenda stjórninni rjett þann, sem Alþingi hefir til að setja lög og gera ákvarðanir um þýðingarmikil mál, sem í rauninni heyra undir þingið. En jeg felli mig ekki við þá aðferð, því að í henni liggur ekki það öryggi um ákveðna stefnu, sem í hinni, og ekki er nú unt að sjá, hvernig leyfið verður útbúið, þar sem það liggur ekki fyrir þinginu.

Jeg minnist þess, að á síðasta þingi voru gefin út heimildarlög fyrir stjórnina til að veita fjelagi nokkru einkarjett til þess að reka útvarp hjer á landi. Og nú er það kunnugt orðið, að risin er upp megn óánægja út af þeim samningi, sem stjórnin hefir gert við fjelagið, og út af reglugerð þeirri, er stjórnin hefir gefið út í tilefni af þessu sjerleyfi. Ekkert skal jeg um það segja, hvort óánægja þessi er á fullum rökum bygð, en ekki mun hún tilefnislaus með öllu.

Þá má geta þess, að í frv., einu eða tveimur, sem lögð hafa verið fyrir þetta þing, hefir verið leitast fyrir um hliðstæða heimild fyrir stjórnina til ákvarðana um mál, sem miklu varða. Jeg á hjer við frv. til laga um viðauka við Flóaáveitulögin frá 1917, þar sem ráðgert var, að stjórnin ákvæði, hve miklu fje skyldi varið til framhaldsstarfsemi þar eystra. Þessu breytti reyndar þingið, þar sem því fanst ekki nógu tryggilega um hnútana búið eins og ákvæði frv. voru. Líkrar heimildar var leitað með frv. til laga um bryggjugerð í Borgarnesi, en einnig þar var af þinginu hamlað. Alt þetta bendir til þess, að hál geti verið þessi heimildarleið. En hjer er um miklu meira að ræða en í áðurnefndum tilfellum. Því að ef sjerleyfið verður veitt eins og til stendur, þá erum vjer bundnir því í 60 ár. En hvortveggja hin lögin, sem jeg nefndi, útvarpslögin og lögin um viðauka við Flóaáveitulögin, gilda aðeins til stutts tíma, önnur til 7 ára, en hinum má að sjálfsögðu breyta þegar á næsta þingi.

Mjer þótti rjett að henda á þetta áður en nokkur ákvörðun yrði tekin, því að hjer er um atriði að ræða, sem ekki verður breytt svo hastarlega og líklegt er að verði að fordæmi. Jeg vil taka það fram, þar sem vikið er hjer í meginatriðum frá fyrirmælum sjerleyfislaganna, að sjerleyfisbeiðnin átti að liggja frammi við meðferð þingsins á þessu máli: Hjer er sem sje gert ráð fyrir 60 árum, en í sjerleyfislögunum er hámarkið 50 ár. Þá er hjer líka gert ráð fyrir stærri virkjun en þeirri, sem stjórninni er heimilt að veita leyfi til eftir sjerleyfislögunum, þar sem fyrir 25 þús. hestafla hámark er ráðgert að virkja 33–35 þús. hestöfl, en leyfi til slíkrar virkjunar er Alþingi áskilið að veita, eins og yfirleitt öll virkjunarleyfi til útlendinga.

Jeg hefði kunnað því best, að sjerleyfið sjálft, með öllum þeim skilyrðum, er fram þurfti að taka, hefði verið lagt fyrir deildina.

Eitt atriði í þessu frv. finst mjer, að tæplega geti staðist. Það er ákvæðið í 3. gr., um að framselja megi sjerleyfið með leyfi ráðherra. Þetta er gagnstætt ákvæðum 36. gr. sjerleyfislaganna. Þar er gert ráð fyrir, að Alþingi samþykki ætíð sjerleyfi til útlendinga, eins og líka framsal hvers virkjunarleyfis til handa þeim.

Þetta eru þær almennu athugasemdir, sem jeg vildi gera. Meira sjerstaks eðlis er það, að mjer þykir hjer alt of fátt liggja fyrir, sem gæti skýrt málið og fyrirhugaðar framkvæmdir. Jeg sje hvergi þau plögg, sem af megi ráða, hve margt manna þurfi til að koma þessari virkjun á fót, eða til iðnrekstrar, þegar þar að kemur. En þetta skiftir alls ekki litlu máli. Ef til framkvæmda virkjunarinnar þyrfti marga menn, segjum eitt þúsund eða svo, þá væri þar saman dreginn svo mikill liðsafli, að á hlyti að sjá hjá öðrum atvinnugreinum, ef allur sá hópur væri tekinn innanlands.

Það er auðvitað hægt að fá hingað útlenda menn, og að sjálfsögðu verður ekki hjá því komist að fá nokkuð af sjerfróðum útlendingum, ef nokkuð verður úr þessu. En það gæti líka komið illa við, ef inn væri flutt mikið af útlendu verkafólki. Bæði mundi það vekja óánægju hjá verkalýð landsins, og hinsvegar hæpinn ávinningur af innflutningi óvalins lausingjalýðs.

Þá er eitt, sem mjer er ekki kunnugt um, hvort gert hefir verið, en gera ber áður en sjerleyfi er veitt. Það er að leita álits hlutaðeigandi hjeraða og fá vitneskju um, hvort þau óska ekki að hagnýta vatnið á annan veg eða tryggja sjer umráð þess. Sjerleyfislögin gera ráð fyrir ákveðnu gjaldi og af þeim verður ekki annað sjeð en að það gjald eigi að falla óskift til ríkissjóðs. Háttv. frsm. (ÁÁ) gat þess, að nefndin hefði í hyggju að gera þá till., að þetta gjald skiftist á milli ríkissjóðs og viðkomandi hjeraða. Mjer fellur það vel, en best hefði farið á því, að þetta hefði staðið í sjerleyfinu sjálfu og að það hefði legið hjer fyrir með öllum nánari ákvæðum og skilyrðum.

Af eðlilegum ástæðum flyt jeg ekki að svo komnu neinar brtt. við frv., og má þó vera, að jeg geri það síðar. Jeg lít svo á, að þessi aðferð, sem hjer er viðhöfð um leyfisveitingu, sje ekki sú rjetta, og að aðra leið beri að fara. Mjer dylst ekki, að ef þessi heimildarlög ganga fram, þá muni síðar verða reynt að nota þau sem fordæmi, þegar aðrir leita leyfis til virkjunar. Þess vegna er dálítið athugavert að skapa fordæmi um undanþágur frá gildandi lögum og veita svo víðtækar undanþágur frá gildandi lögum og ívilnanir, sem hjer er farið fram á. Það er hætt við, að hið sama verði fast sótt af öðrum, sem á eftir koma, og þá ef til vill handa stærri fyrirtækjum, sem reynast oss ofjarlar. Þess vegna hefði jeg kosið, að ekki væri gert svo mikið að því að víkja frá sjerleyfislögunum sem hjer er stefnt að. Um líkurnar fyrir góðum árangri af þessu fyrirtæki ætla jeg ekki að tala. Mig skortir kunnugleika til að geta dæmt um þær. Jeg get ekki bygt á öðru en áliti sjerfræðinga þeirra, sem þetta hafa athugað, og jeg geri ráð fyrir, að upplýsingar þeirra fari nærri lagi. En litlar mætur hefi jeg á þessu útlendingadekri.